Leita í fréttum mbl.is

Hvað á barnið heita?

Hér áður fyrr á árum fengu ríkisstjórnir gjarnan nafngiftir, en yfirleitt voru þau nú frekar valin af kerskni en öðru. Oft var þar vísað til hástemmdra yfirlýsinga um stefnu þeirra, eðli og inntak. Þannig heyra menn kannski ekki lengur í gegnum nið sögunnar þann hæðnistón, sem jafnan fylgdi Stjórn hinna vinnandi stétta (1934-39). Þá þótti nokkrum tíðindum sæta að Alþýðuflokkurinn á mölinni og Framsóknarflokkurinn í moldinni gætu starfað saman og málgögn flokkanna tönnluðust á samstarf hinna vinnandi stétta í aðdraganda stjórnarmyndunar, þar sem bændur og verkamenn tækju höndum saman gegn „iðjuleysingjum, bröskurum og slæpingjum“, eins og þorri Reykvíkinga var nefndur af þeim, en guðfaðirinn var vitaskuld Hriflu-skrímslið, þó þeir Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson boluðu honum blessunarlega frá landstjórninni. Ráðherrarnir, sem skipuðu stjórnina þóttu á hinn bóginn ekki beinlínis salt jarðarinnar eða fulltrúar alþýðunnar og því festist nafnið. Snorri vissi hvað hann söng um oflofið.

Alveg eins voru fyrirheitin hent á lofti þegar Nýsköpunarstjórnin fékk sitt nafn og Viðreisnin sömuleiðis, en það vildi þeim til happs að nöfnin voru ekki neikvæð og áður en yfir lauk gátu viðkomandi stjórnarflokkar haldið því fram með góðri samvisku, að þær hefðu borið nafn með rentu. Stefanía og Ólafía voru nefndar eftir forsætisráðherrunum Stefáni Jóhanni Stefánssyni og Ólafi Jóhannessyni, en það var nú ekki í neinu sérstöku virðingarskyni.

En svo hafa ekki allar ríkisstjórnir fengið nöfn af þessu tagi. Sú ríkisstjórn, sem nú er senn á förum, eignaðist þannig ekkert viðurnefnið og hefði maður þó haldið að einhver hefðu fundist tilefnin. Hið sama átti við um ríkisstjórn sömu flokka undir forsæti Geirs Hallgrímssonar. Sumir reyndu eitthvað fyrir sér í þeim efnum, en allt var það fremur kreistingslegt og ekkert þeirra festist. Stöku stjórnir hafa svo hlotið fjarskahlutlaus nöfn: Þjóðstjórnin á styrjaldarárunum lýsti eðli hennar næsta vel og Viðeyjarstjórn Davíðs Oddssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar vísaði fyrst og fremst til fundarstaðarins, þar sem hún var mynduð, þó mörgum hafi þótt sniðugt að í nafninu fólst hljóðlíkingarvísun til Viðreisnarstjórnar sömu flokka.

Skipta nöfn máli?
Til forna þótti mönnum nöfn skipta miklu máli. Þannig var hið raunverulega nafn Rómar strangleynilegt, svo óvinir hennar gætu ekki notfært sér þá vitneskju með galdri eða ámóta til þess að sigrast á henni. Það þekkir enginn nú. Eins er rík hefð fyrir því meðal kristinna og annarra trúarbragða að nefna þann vonda ekki réttu nafni af ótta við að auka honum mátt eða jafnvel kalla hann til sín. Sjálft nafn Guðs gyðinga og kristinna manna er að líkindum ekki þekkt lengur, þó einhverjar launhelgar finnist, sem þykjast búa yfir því. Hann fyrirbauð enda í boðorði að það væri lagt við hégóma. Gyðingar forðast enn þann dag í dag að nefna hann nema með auknefnum og jafnvel þau eru vandmeðfarin, jafnt á hebresku sem öðrum tungum. Í texta skrifa trúaðir gyðingar þannig yfirleitt „G*ð“ þurfi þeir að víkja að honum.

Menn þurfa þó ekki að seilast svo langt til þess að átta sig á því að nafngiftir skipta máli. Ekki er langt síðan menn rökræddu það hvort N1 væri gott nafn og frumlegt á benzínstöðvar, reglulega er boðið til samkeppni um ný nöfn á fyrirtæki, hús og hvaðeina og á góðum dögum hlæja Íslendingar og mæra Eirík rauða Þorvaldsson sem föður almannatengsla fyrir að hafa gefið Grænlandi það nafn.

Í persónulega lífinu þekkja það svo flestir hvílíkur vandi er að velja börnum nafn. Foreldrar hafa ýmsar aðferðir og markmið við það val, en enginn gefur það út í loftið að óathuguðu máli. Það eiga allir menn sameiginlegt óháð menningu. Óhætt virðist því að slá föstu að í hugum fólks skipta nöfn verulegu máli.

Baugsstjórn eða hvað?
Þetta er orðið pólitískt þrætuepli vegna hinnar ómynduðu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, sem líklegt verður að teljast að verði mynduð á næstu dögum. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, og ýmis flokkssystkin hans hamra á því að hún verði réttnefnd Baugsstjórn og vísa þar til þess, að Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, hafi í kosningabæklingi Samfylkingarinnar, sem dulbúinn var sem sérútgáfa DV (sem er réttnefndur Baugsmiðill), lagt á það mikla áherslu að af stjórnarsamstarfi þessara tveggja flokka yrði. Í því samhengi er einnig minnst á þá taug, sem verið hefur milli Baugs og forystu Samfylkingarinnar, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var á sínum tíma óþreytandi við að taka upp hanskann fyrir auðhringinn og naut þeirra tengsla á ýmsan hátt. Haldi menn að það sé allt í fortíðinni geta þeir velt fyrir sér hvaðan Samfylkingin fékk sínar 30.000 rauðu rósir í kosningabaráttunni um daginn og við hvaða verði.

Hitt er svo annað mál hvort að sú staðreynd, að þetta ríkisstjórnarmynstur sé Baugi þekkilegast, þýði að stjórnin yrði á einhvern hátt á hans vegum, þó einstakir eða einstakur ráðherra hennar væri kannski hollari Baugi en hollt væri. Á það má minna að í skoðanakönnunum — meðal annars á þessari síðu! — hefur komið fram, að margir telja þetta samstarf ákjósanlegast. Sá áhugi er meiri í atvinnulífinu en meðal almennings, eins og fram kom í könnun Miðlunar fyrir Viðskiptablaðið, sem gerð var meðal stjórnenda í einkageiranum, og hefur komið enn sterkar í ljós síðustu daga í viðbrögðum markaðarins.

Nei, að því leyti er nafngiftin enn innistæðulaus, þó pólitískir andstæðingar flokkanna hafi gaman af að nudda þeim upp úr henni, enda sárnar stjórnarflokkunum in spe það báðum verulega, af sitt hvorri ástæðunni. Hins vegar bíður maður málefnasamnings ríkisstjórnarinnar með eftirvæntingu. Verður þar eitthvað að finna til þess að treysta íslenskt atvinnuumhverfi og fjármálalíf, auka ábyrgð og þar fram eftir götum? Í því samhengi hlýtur maður sérstaklega að líta eftir hlutum eins og ábyrgð stjórnenda gagnvart almenningshlutafélögum, upplýsingaskyldu þeirra og stjórnarmanna, hlutverks og styrks Fjármálaeftirlitsins, yfirtökuskyldu og þannig mætti áfram telja. Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá.

Hvaða nöfn eru þá tiltæk fyrir þessa ríkisstjórn, ef um semst? Vinur minn stakk upp á Kaffibætisbandalaginu, en mér finnst það nú fulllangtseilst. Ég sá einhversstaðar Geirrún og Geirbjörg, en það er kreistingur, sem engin hætta er á að festist. En hvernig ríkisstjórn verður þetta? Báðir flokkar hafa þokast nær miðju undanfarna mánuði og ég hygg að þeir muni nálgast hvor annan enn meira í ríkisstjórn. Þar verður sjálfsagt lögð meiri áhersla á „fagleg vinnubrögð“ en pólitíska stefnufestu og ekki kæmi mér á óvart þó pólitískur rétttrúnaður næði nýjum hæðum. Ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna á vafalaust enn eftir að aukast og á þingi sitja nánast tómir atvinnustjórnmálamenn, mengaðir af póst-módernískum viðhorfum til lífsins og verkefna sinna.

Í því samhengi leyfi ég mér því að leggja það til að hin nýja ríkisstjórn verði kölluð Stjórn hinna talandi stétta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Eggertsson

"Stjórn hinna talandi stétta" er ágætt, en enn betra ef það yrði "Stjórn hinna hugsandi stétta", eða einfaldlega "Menningarstjórnin" og þá í víðri merkingu orðsins menning.

En samkvæmt nýjustu fréttum virðast Geir og Ingibjörg Sólrún vilja að stjórnin verði kölluð "Þingvallastjórnin".

Sem er þá skrauthvörf fyrir Menningarstjórn, nema hvað?

Þingvallastjórn skal hún heita og vera stjórn hinna talandi og hugsandi stétta, og þá menningarstjórn.

Viðar Eggertsson, 19.5.2007 kl. 18:37

2 Smámynd: Pétur Tyrfingsson

Ég held við ættum að gera gott úr gálgahúmor Framsóknar. Sjálfstæðismenn ættu að koma til mós við maddömuna eins og áður, brosa og segja: "Eigum við ekki að kalla hana baugalín?" Ljóðrænir ungmennafélagsmenn geta ekki staðist nafnið því það fer betur í munni en s-s í miðri samsetningu, íhaldið svara í glettni og Samfylkingin finnur að nafnið er mjúkt eins og hún vill vera. Baugalín skal hún heita.

Pétur Tyrfingsson, 19.5.2007 kl. 20:42

3 identicon

Hvað hét stjórn Sjálfstæðis og Framsóknar, eða var hún það ómerkileg að hú hafði ekki nafn??

Ragnar (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 21:47

4 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Andrés.

Fyrir það fyrsta er ég ekkert hrifinn af þessari stjórn því til að svara hún mun reyna hvað hún getur að hafa áhrif á Sjálfstæðismenn þá er átt við inngöngu í Evrópubandalagið og ráðast á kvótakerfið þetta hefur Össur sagt í rituðu máli. Mér líst ylla þegar annar flokkurinn Sjálfstæðismenn vilja ekki inngöngu á sama tíma vill Samfylking hefja inngöngu í Evrópubandalagið. Varandi kvótakerfið verður að stöðva frjálsa framsalið ég á eftir að sjá það hvað þeir gera í þeim málum.

Margar yfirlýsingar hafa verið gefnar út þar á meðal ætlar Samfylking að taka upp skólagjöld og fleiri atrið mun ég bíða með þangað ég hef séð málefnaskrána sem þessi ríkistjórn ætlar að bjóða upp á ef hún verður stofnuð.

Varandi fyrri stjórn Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokksins hún hét velferðastjórnin þetta var framfarastjórn sem stóð sig frábærlega verður þetta ekki tekið af henni. Hvað sem tautar og raular.

Þessi stjórn mun ætíð hafa stimpillinn Baugstjórn hvort mönnum líkar það illa eða ekki. Hún hefur fengið þetta viðurnefni af þjóðinni. Sem líkar illa þegar auðjöfrar eru með íhlutun í stjórnmálamenn sem eru að reyna að vinna eins heiðarlega og þeir geta. Þá koma menn í skjóli auðs og vilja manninn burtu. Þessi framkoma mun koma niður á þeim sem viðhafa svona framkomu. Hún er til vansa fyrir svona fólk.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 19.5.2007 kl. 21:54

5 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Miklu minni flokkur Alþýðuflokkurinn dreifði í allnokkur skipti 30 þúsund rósum. - Ósköp finnst mér það ómerkilegar aðdróttanir að segja fólki að velta fyrir sér hvaðan Samfylkingin fékk rósirnar eða kalla blað sem Sjálfstæðisflokksmaðurinn Hreinn Loftsson stjórnar kosningablað Samfylkingarinnar. Hafði fyrir því að grafa þetta blað upp því forsíða þess hafði ekki kallað á athygli mína þegar ég fór í gegnum blaðahauginn eftir að ég kom frá útlöndum tveimur dögum eftir kosningar. Mér er ómögulegt að skilja hvernig þetta DV á nokkur að hafa breytt svo skömmu fyrir kosningar. Forsíðan segir ekkert og engar fyrirsagnir eða skilaboð til undirvitundar þess sem flettir í gegnum blaðið skilja neitt markvert eftir sig. - Hagfræðileg gagnrýni inni í löngu meginmáli rétt fyrir kosningar nær ekki til óákveðinna kjósenda á þessu stigi og breytir engum kosningaúrslitum.

Þetta blessað DV er í engum skilningi kosningablað eða áróðursblað, hvað þá fyrir Samfylkinguna stýrt af Sjálfstæðismönnum. 

Helgi Jóhann Hauksson, 19.5.2007 kl. 22:16

6 Smámynd: Viðar Eggertsson

Baugsmálið mikla er fyrst og fremst innanflokksátök í Sjálfstæðisflokknum. Allar aðalpersónur málsins eru sjálfstæðisflokksmenn, Jóhannes, Hreinn og Björn. Skil ekki hvað er verið smjörklípuklína því á aðra.

Viðar Eggertsson, 19.5.2007 kl. 22:32

7 Smámynd: halkatla

SS sveitin er töff, en mér lýst best á SKÓLABALLSTJÓRNIN - þau minna mig svo á "the prom queen and king"

halkatla, 19.5.2007 kl. 23:08

8 Smámynd: Viðar Eggertsson

SS er líka sjónarmið. Þetta er tvær stærstu stjórnmálafylkingar landsins og voru kosnar sama dag og Risessan fór um bæinn. Stjórnin gæti þá allt eins verið kölluð Risessan eða jafnvel RiseSSan :)

Viðar Eggertsson, 19.5.2007 kl. 23:09

9 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Eitt tilbrigði í viðbót, sbr. aths. Viðars hér næst á undan:

BaugSStjórnin

Hlynur Þór Magnússon, 19.5.2007 kl. 23:34

10 Smámynd: Pétur Tyrfingsson

...ég gef þetta ekki eftir. Af ljúfmennsku vorri skulum við kalla hana BAUGALÍN.

Pétur Tyrfingsson, 20.5.2007 kl. 01:08

11 identicon

Blessaður herra Andrés!

Ég var að lesa hugrenningar sama efnis hjá Gumma Steingríms og setti þar inn þessi orð -- sem eiga kannski við hér (og þó):

Uppstigningarstjórn, Þingvallastjórn... voðalegt issjú er þetta meðal spunamanna hvaða heiti þessi stjórn ber. Svekktir og kokkálaðir brúsapallapiltar vilja endilega klína nafngiftinni Baugsstjórn á fyrirbærið. Vissulega er það á dragúldnum forsendum: En, er það ekki þess virði? Væri það ekki kostuleg kaldhæðni örlaganna ef Björn Bjarnason sæti í ríkisstjórn sem kölluð er Baugsstjórn?

Kveðja,

Jakob

Jakob Bjarnar (IP-tala skráð) 20.5.2007 kl. 11:25

12 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Andrés.

Jakob Virðist ekki ganga á öllu. þegar menn sem hafa skrifað hér þá virðist mér hann hundsvekktur og vill taka af fólki sínar skoðanir. Kalla þetta fólk kokkálaðir brúsapalla pilta. og dragúldnar forsendur.

Þessi sýnir hvað það fer illa þegar fólkið í landinu er með Baugstjórn á heilanum þú getur ekkert komist undan því. Enn að vera með brúkyrði út í Björn Bjarnason er ekki nokkrum manni sæmandi. Hann hefur ekki gert nokkrum manni neitt hvorki þér né öðrum sæmandi.

Menn geta haft sínar athugasemdir eins og þeir vilja. Enn fjalli málefnalega um hlutunum til að geta fjallað heiðarlega um málefnin. Enda er ég mjög hræddur um að þetta gangi ekki upp með Samfylkinguna þessi stjórn er með mjög ólíkar skoðanir. það er mín skoðun eins og ég hef bent á áður.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 20.5.2007 kl. 12:11

13 identicon

Jóhann Páll! Þú ert ágætur.

En að öðru... Andrésus. Ég fylgdist með ykkur spekingunum í Silfrinu mér til skemmtunar áðan. Og þá vaknaði hjá mér þanki sem reyndar hefur gert vart við sig áður. Oft hef ég dáðst að því hversu staðfastur þú ert í þínum frjálshyggjulegu viðhorfum. En hollusta þín við Sjálfstæðisflokkinn og Björn er þinn Akkilesarhæll. Því þá fer fljótt að glitta í mótsagnirnar og tækifærismennskuna. Nú hef ég oft heyrt þig segja að bestu stjórnmálamennirnir séu þeir sem gera sem allra minnst. Allt er þetta í góðum takti við frjálshyggjuna. Hvernig þú, í ljósi þess, getur rökstutt það fyrir sjálfum þér að Björn sé svo frábær ráðherra af því að hann sé svo duglegur er mér því hulin ráðgáta.

Kveðja,

Jakob

Jakob Bjarnar (IP-tala skráð) 20.5.2007 kl. 14:37

14 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Ég hef ekki séð ISG brosa svona breitt sýðan Davið Oddson tilkynnti afsögn sína. Er ekki hægt að fá hana til að bíta í sítrónusneið?

Hlynur Jón Michelsen, 22.5.2007 kl. 03:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband