Leita í fréttum mbl.is

Nú árið er liðið…

Þá er komið að lokum þessa árs, sem um margt var gjöfult en það tók líka á að öðru leyti eins og gengur.

Í stjórnmálunum voru heilar þingkosningar og stjórnarskipti, en jafnþverstæðukennt og það hljómar urðu samt engin stórtíðindi á þeim vettvangi. Nema ef menn vilja ræða um þá pólitísku lífgjöf, sem Geir H. Haarde veitti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og á alveg eftir að trega. Sá dagur kemur.

Framsóknarflokkurinn nánast geispaði golunni í þingkosningunum og á tæpast mikið eftir. Allra síst þegar þeirra helsta vonarstjarna, Björn Ingi Hrafnsson, sýndi hvers trausts hann er verður í stjórnmálum og kaus að láta annarlega hagsmuni ganga fyrir hagsmunum borgarbúa. Önnur vonarstjarna í íslenskum stjórnmálum, Svandís Svavarsdóttir, var valin „maður ársins“ á Rás 2 í dag, sem er mér fullkomlega óskiljanlegt. Víst stóð hún sig vel þegar REI-málið var í uppnámi, en þegar á reyndi kom hún upp um sig sem enn einn valdagírugan stjórnmálamanninn og allar heitstrengingarnar fóru út um gluggann.

Ástandið á mörkuðum hefur verið mörgum hugleikið og ástæða til, þar skiptust á ekki minni skin og skúrir en í veðurfarinu. Ég nenni þó ekki að fjalla um það að sinni, en drep kannski niður penna síðar um það hvers kann að vera að vænta. En það er kannski meiri ástæða til þess að huga að hinum séríslensku efnahagsmálum, sem héldu hraðar til Helvítis á liðnu ári en svartsýnustu menn gerðu skóna. Ekki vegna óvarkárni á mörkuðum, gjaldmiðilsins eða vaxtastigsins; nei, það eru ríkisfjármálin, sem eru á góðri leið með að gera íslenskt efnahagslíf nánast ólæknandi. Nú renna um 47% vergrar landsframleiðslu til hins opinbera, en þar á bænum komast menn ekki lengur yfir það að eyða peningunum, heldur safna þeim líkt og ríkið skil arði! Þriðjungur vinnufærra manna starfar á vegum hins opinbera. Engin teikn eru á lofti um að snúið verði af þessarri óheillabraut, en vandinn grefur um sig, þannig að sífellt verður erfiðara og sársaukafyllra að uppræta hann. Eiga skattgreiðendur enga málsvara eftir á þingi?

Sem rifjar upp aðra óhamingju liðins árs, en það var óvænt og ótímabært fráfall Einars Odds Kristjánssonar, athafnamanns frá Flateyri. Það var mikill skaði og ég syrgi hann mikið.

Verður næsta ár betra? Ég vona það, þó ekki væri nema vegna þess að við kunnum að sjá eðlilegra tíðafar á mörkuðum og í fjármálalífi þjóðarinnar, þar sem menn ganga um sali af áræði en ekki glannaskap, varfærni en ekki deiglu. Ég óttast hins vegar að hinir lýðræðislega kjörnu valdhafar átti sig ekki á þeim vindum og að þar haldi partýið áfram á fullum dampi, enda eru menn þar að eyða annarra manna peningum undir því yfirskyni að án þess fengi fagurt mannlíf ekki þrifist. Það er meinið.

Gleðilegt ár og þakka hið liðna!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

jamm

Brjánn Guðjónsson, 1.1.2008 kl. 14:34

2 Smámynd: K Zeta

En ertu ekki til í að skoða þetta með RíkisJötuna, hlutfall starfa hjá hinu opinbera, þ.e. ríki og sveit?

K Zeta, 2.1.2008 kl. 16:44

3 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Kæri vinur.

Ég óska þér og Auðnu gleðilegs árs með mikilli þökk fyrir það liðna.

Hlynur Jón Michelsen, 6.1.2008 kl. 03:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband