Leita í fréttum mbl.is

Dómharka er meiri löstur en fjárhættuspil

Birkir Jón Jónsson.Ég skrifaði færslu á Eyjuna í gærkveldi, þar sem ég vék að spilamennsku Birkis Jóns Jónssonar. Þar setti ég í stuttu máli fram þá skoðun að hún kæmi engum við nema Birki Jóni sjálfum.

Nú les ég hugleiðingar Reynis Traustasonar, ritstjóra DV, um þessi mál. Þar heldur hann því fram að Birkir sé haldinn spilafíkn og verði að leita sér hjálpar. Það byggir hann á því að Birkir hafi komið í spilavíti á Suðurgötu fyrir sex árum!

Mér finnast svona sleggjudómar og dómharka ekki boðleg. Hvað þá að þeir eigi erindi í fjölmiðla. Bendir eitthvað til þess að spilamennska Birkis hafi háð honum á einhvern hátt? Eða að almenningur eða almannavaldið þurfi að grípa til sinna ráða vegna hennar? Nei, svo er ekki. Hins vegar er verið að stilla manninum upp við vegg, knýja hann til þess að bera af sér ósannaðar sakir og um leið láta hann svara því hvort hann sé fíkill eða ekki. Það finnst mér ósæmilegt í meira lagi.

En kannski þetta lýsi einhverjum breyttum viðhorfum í þjóðfélaginu, að menn telji samfélagið eiga einhverja kröfu á breytni einstaklinganna umfram þessar lágmarkskröfur, sem settar eru fram í lögum. Að það sé tækt til opinberar umræðu hvort Bubbi reykir eða ekki, Birkir spili eða Bjarni Harðarof feitur.

Tillitssemi og umburðarlyndi eru dyggðir; afskiptasemi og dómharka ekki. Dómharka er meira að segja meiri löstur en fjárhættuspil, því hún smitar út frá sér en mögulegur skaði af fjárhættuspilum er næsta takmarkaður við þann, sem þau stundar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég vil benda á góða færslu sem Ólína Þorvarðardóttir skrifaði um þetta mál í gær. Ég er sammála henni.

Kristín Helga (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 10:32

2 identicon

Ég held að það sé ansi erfitt að lastaraða sérlega fíkn og dómhörku. Hver sá sem fer í stjórnmál verður að gera ráð fyrir dómhörku og skotum. Nú logar allt í Bandaríkjunum hvort forsetaframbjóðandi hafi haldið framhjá fyrir sex árum. Stjórnmálamenn munu fá ertuhætturaðberjakonunaþína spurningu áfram. Birkir var bara klaufi í úrvinslunni. Jú, jú Össur skaut yfir markið (ekki strikið eins og Sigurður Kári sagði).

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 10:40

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég tek undir þetta með þér, Andrés. 

Það má ekki gleyma því að það sem Birkir Jón gerði var löglegt meðan hann hefur fjárhættuspil ekki að atvinnu.  Það getur vel verið að Birkir Jón sé að glíma við einhverja fíkn.  Ég spyr bara hver hefur ekki einhverja fíkn að berjast við?  Það er bara ekkert í fréttinni (játningu Birkis Jóns) sem gefur í skyn að hann eigi við slíka fíkn að eiga og því er það algjörlega óviðeigandi fyrir Reyni Traustason að slá svona hlutum fram.  Jafn óviðeigandi og sumir bloggarar hafa verið að tengja áfengisdrykkju við ummæli og vandræðagang Össurar Skarphéðinssonar og Vilhjálm Þ. Vilhjálmssonar.  Þetta er dæmigerð aðferð við að búa til nýja og alvarlegri frétt og beina þannig athyglinni frá umræðuefninu.

Marinó G. Njálsson, 22.2.2008 kl. 12:33

4 Smámynd: Oddgeir Einarsson

Alveg sammála þessu. Það er ekkert ósiðlegra að henda peningum í veðmál en hvaða aðra vitleysu sem menn hafa gaman að, t.d. jeppa. Síðan er alveg klárt að maðurinn var aldrei á neinu gráu svæði varðandi lögin. Í fyrsta lagi hefur hann ekki atvinnu af fjárhættuspilum. Jafnvel þótt hann hefði atvinnu af pókerveðmálum þá má draga verulega í efa að það teldist ólöglegt ef marka má danskan dóm í svipuðu máli: http://nyhederne-dyn.tv2.dk/article.php/id-7568028.html

Oddgeir Einarsson, 22.2.2008 kl. 14:56

5 Smámynd: Bjarni Harðarson

góður andrés - eiginlega jafn góður og kollegi okkar rt er aumkunarverður. þessi umræða um spilafíkn er annars nokkuð merkileg í landi sem er að koma úr háloftum hlutafjárfyllerís, - hefur engum dottið í hug að loka kauphöllinni,- það er þar sem spilafíklar geta virkilega misst sig og hafa gert sumir...

Bjarni Harðarson, 22.2.2008 kl. 17:37

6 identicon

Nei veistu, ég held að hann sé haldin spilafókn.

Valsól (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 23:49

7 identicon

Íslendingar eru með þessari umræðu um þetta saklausa og 100% löglega spilerís Birkis að slá heimsmet í smáborgara- og smásálarhætti.  Svei mér þá, ef ég skammast mín ekki fyrir að vera Íslendingur m.v. á hvern hátt margir hér tjá sig.    Þvílíkir mölbúar!

Á virkilega að gera lítið úr manni fyrir að spila spil og nota það gegn honum pólitískum sandkassaleik?   Hvaða löstur er fólgin í því að leika sér með svo saklausum hætti?    Er fólk algjörlega að missa sig í fávitaskap?  Reynir Traustason er sennilega lágkúrulegasti blaðamaðurinn á íslenskum markaði í dag og mega vinnuveitendur hans skammast sín fyrir að borga fyrir óvönduð vinnubrögð hans.

Tek það fram að ég er ekki framsóknarmaður og spila spila sjálfur ekki fjárhættuspil (nema ef vera skyldi að hlutabréfaviðskipti floakkast sem slíkt) í formi hlutabréfakaupa), en ofbýður þessi umræða engu að síður.

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 04:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband