Leita í fréttum mbl.is

Fyrir þetta þarf að refsa hart og hratt

ofsaakstur 

Þessi hegðan er svo fullkomlega ábyrgðarlaus að ég trúi ekki öðru en að yfirvöld sækist eftir hörðustu refsingu, himinhárri sekt og helst ævilangri sviptingu ökuréttinda. Farþegann ætti svo að sækja til saka fyrir saknæmt aðgerðaleysi eða samsekt. Það þykir mér samt ekki nóg að gert og vonast til þess að nýtt verði heimild um upptöku ökutækisins. Fyrir svona háskaleik á að refsa harðlega og senda skilaboð um hvernig á slíku verður tekið.

Morgunblaðið talar um að hér hafi tveir „unglingspiltar“ verið á ferð, en getur þess svo að þeir séu um tvítugt. Þá eruþetta fullorðnir menn, lögráða og að líkindum sakhæfir, þó auðvitað megi líkja athæfinu við geðveiki eða alvarlegan greindarskort.

Ég á beinna hagsmuna að gæta. Ein dætra minna er í Austurbæjarskóla og leikur sér þarna í portinu ásamt vinum sínum á hverjum degi. Vestur í Bandaríkjunum er bæði hefð og lagabókstafur fyrir því að taka sérdeilis hart á hvers kyns lögbrotum nálægt barnaskólum. Væri ekki rétt að taka þann sið upp hér?


mbl.is Ofsaakstur á skólalóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gera bílinn upptækan! Þessi bjálfi hefur ekkert með bíl að gera.

lelli (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 16:23

2 Smámynd: Einar Þór Strand

Þetta er náttúrlega fyrir neðan alltar hellur, en ég furða mig á blaðamönnum mbl að hafa ekki skipt sér að og stöðvað þetta í stað þess að taka bara myndir.

Einar Þór Strand, 25.8.2008 kl. 16:34

3 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Það er eitt annað í þessu sem ég  er að velta fyrir mér: hvert var erindi þeirra þarna? Voru þeir að pikka upp stelpur með þessum stælum?

Elías Halldór Ágústsson, 25.8.2008 kl. 17:12

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Mér finnst þessi ofsaakstur vera færast í vöxt inn inn í venjulegum íbúðarhverfum. Í götunni hjá mér - sem er nú ekki löng - var ekið með ofsahraða um helgina.

Lögreglan er því miður allt of mikið að eyða púðrinu í hraðakstur á vegum úti og er t.d. reglulega lögreglubifreið á Reykjanesbrautinni, sem ég ek nokkrum sinnum í viku. Það er alltaf jafn fyndið að aka inn á þessu hálfgerðu hraðbraut og setja krúskontrólið á 90-95 km, en sjá síðan fólk á svipuðum hraða inn í hverfum Reykjavíkur og Reykjanesbæjar.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 25.8.2008 kl. 18:26

5 identicon

Farþeginn hlýtur að verða kærður líka, í anda þess að eiginkona á Suðurlandi var dæmd fyrir að hafa ekki kært eiginmanninn fyrir bruggun.

Vegfarandi (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 10:10

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þetta eru sannkallaðir rugluydallar

Sigurður Þórðarson, 26.8.2008 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband