Leita í fréttum mbl.is

Hverjum klukkan glymur

nasdaq 

Í gær kom það í hlut Geirs H. Haardes forsætisráðherra að „hringja bjöllunni“ við lok viðskipta á hlutabréfamarkaðnum Nasdaq. Ég set gæsalappir þar utan um því Nasdaq er algerlega rafrænn markaður og þar er ekkert markaðsgólf eða eiginleg bjalla. Þess í stað studdi Geir á hnapp til þess að binda enda á viðskiptin þennan daginn.

Af einhverri ástæðu komu hin fleygu orð um hverjum klukkan glymur upp í huga minn. Metallica gerði lag með því heiti, For Whom the Bell Tolls, sem hlusta má á í tónlistarspilaranum efst til hægri. Áður hafði Ernest Hemingway auðvitað komið þeim á hvers manns varir, en hann fékk þau að láni frá breska frumspekiskáldinu og prédikarnum John Donne. Hann notaði þau í frægri bænagjörð: „Spurðu ekki hverjum klukkan glymur, hún glymur þér.“

Sú hugvekja frá 1623 hefur svo sannarlega staðist tímans tönn og raunar er ég ekki frá því að hún sé einstaklega viðeigandi nú á þessum óvissutímum á mörkuðum. Það má a.m.k. með góðum vilja lesa hana þannig núna, svo tíðrætt sem Donne verður um að enginn geti einangrað sig, stöðu alþjóðasamfélagsins; betl, lántökur og eymd; gull, gengi og gjaldmiðla; ágirnd, auðlegð og mótlæti. Í lokin bendir hann svo á þær varnir og öryggi ein sem dugi. Ætli íslenskum fjármálafakírum og áhugamönnum um efnahagsmál væri ekki hollt að lesa Donne, nú þegar þeir eru að kynnast guðsóttanum?

Who bends not his ear to any bell which upon any occasion rings? but who can remove it from that bell which is passing a piece of himself out of this world? No man is an island, entire of itself; every man is a piece of the continent, a part of the main.

If a clod be washed away by the sea, Europe is the less, as well as if a promontory were, as well as if a manor of thy friend's or of thine own were: any man's death diminishes me, because I am involved in mankind, and therefore never send to know for whom the bell tolls; it tolls for thee.

Neither can we call this a begging of misery, or a borrowing of misery, as though we were not miserable enough of ourselves, but must fetch in more from the next house, in taking upon us the misery of our neighbours.

Truly it were an excusable covetousness if we did, for affliction is a treasure, and scarce any man hath enough of it.

No man hath affliction enough that is not matured and ripened by it, and made fit for God by that affliction.

If a man carry treasure in bullion, or in a wedge of gold, and have none coined into current money, his treasure will not defray him as he travels.

Tribulation is treasure in the nature of it, but it is not current money in the use of it, except we get nearer and nearer our home, heaven, by it.

Another man may be sick too, and sick to death, and this affliction may lie in his bowels, as gold in a mine, and be of no use to him; but this bell, that tells me of his affliction, digs out and applies that gold to me: if by this consideration of another's danger I take mine own into contemplation, and so secure myself, by making my recourse to my God, who is our only security.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Svo geta þessir alar þarna í USA ekki einusinn haft réttan lit á flgginu okkar.

Það hefði nú eitthvað heyrst ef ,,Stars and stripes" hefði verið birt fölgrænt í stað blátt.

Aular allir saman og svo sýna þeir rétt andlit núna, þegar allt er komið í buxurnar, þá ætlast þeir til að vengjulega fólkið greiði en þeir haldi öllu sínu, nánast.

Miðbæjaríhaldið

Íhald af frómri og fornri gerð

Bjarni Kjartansson, 25.9.2008 kl. 10:20

2 Smámynd: Mál 214

En er þetta ekki örugglega nýdanski fáninn ?

http://www.visir.is/article/20071025/LIFID01/110250162/-1/LIFID

Mál 214, 1.10.2008 kl. 22:06

3 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Jesús minn að horfa á þessa mynd núna eftir allt það sem hefur gerst.

Jón Gunnar Bjarkan, 17.10.2008 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband