Leita í fréttum mbl.is

Lögin og friðurinn

Merkileg niðurstaða hjá Hæstarétti að staðfesta úrskurðinn úr héraði um frávísun ákæru gegn þremur núverandi og fyrrverandi forstjórum olíufélaga vegna samkeppnisbrota. Ég er ekki alls kostar ánægður með þá ákvörðun, því mér finnst afar mikilvægt að æðstu stjórnendur fyrirtækja — forstjórar, framkvæmdastjórar og stjórnarformenn — beri ábyrgð á rekstri fyrirtækja. Ella er hætta á að þeir geti notað fyrirtæki sín sem skálkaskjól fyrir hvers kyns glæpastarfsemi. Eins og margvísleg dæmi eru um, bæði hér á landi og erlendis.

En ég sé að Ólafur Börkur Þorvaldsson skilaði sératkvæði þar sem hann vildi fella úrskurð héraðsdóms úr gildi og leggja fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.

Sératkvæði Ólafs Barkar hlýtur að hafa eyðilagt daginn fyrir samsæriskenningasmiðum þjóðarinnar. Ég les reglulega hjá þeim hvernig Ólafur Börkur eigi bara að vera strengjabrúða íhalds- og auðvaldsaflanna í þjóðfélaginu, en svo reynist hann bara sá eini sem vill láta olíufurstana sæta ábyrgð takist að sanna sekt þeirra. Hinir vilja hins vegar ekki einu sinni hlýða á efnisatriði málsins.

Þarna er hins vegar enn fram komin áhættan af því að vera með margskonar réttarfar í landinu, þar sem t.d. samkeppnismál eru tekin út fyrir sviga og Samkeppniseftirliti falin æði mikil völd til eftirlits, rannsókna og úrskurða, heimild til samninga við seka o.s.frv. Nú vilja menn svipað fyrirkomulag í jafnréttismálum. Hvílík firra!

Það hefur ekkert breyst undanfarinn aldatug. Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér slítum í sundur friðinn. Það þarf ein lög í landinu og eitt réttarfar.


mbl.is Ákæru á hendur forstjóra olíufélaga vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Réttlætið er í beinu samhengi við fjárráð sakbornings.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.3.2007 kl. 00:05

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Umræða á villigötum
Það eru margir sem hafa verið að lýsa hneykslun sinni á sýknu olíuforstjóranna og nú síðast forstjóri Samkeppniseftirlitsins sem vill einsog margir aðrir að stjórnvöld geti sótt einstaklinga til saka fyrir brot á samkeppnislögum sem mundi að vísu auka völd Samkeppnisstofnunar!
En er málið í réttum farvegi?
Ég vil auka ábyrgð forstjóra og stjórnanda en væri ekki betra að fyrirtækin gætu krafið forstjórana (og aðra) um bætur fyrir tjón (sektargreiðsluna) sem fyrirtækið hefur orðið fyrir?
Raunhæft er að miða þær tjónabætur við þau laun sem viðkomandi hafði á þeim tíma en ekki sektarupphæð Samkeppnisstofnunar en í olíumálinu þá gæti þetta samt orðið verulegar fjárhæðir.
Þannig mundi ríkið losna undan þeirri skyldu að lögsækja fyrir brot og „glæpamenn“ fá sína refsingu.
Bendi á að það er fordæmi fyrir þessu sem segir að ef starfsmenn vinna ekki út uppsagnarfrestinn þá eigi atvinnurekendur  rétt á bótum vegna tjóns sem hann telur sig verða fyrir við brotthlaup stafsmansins  og yfirleitt er þeim lægst settu hótað þessu miskunnarlaust þó svo forstjórar geti labbað út með 10 mínúta fyrirvara.

Grímur Kjartansson, 17.3.2007 kl. 13:11

3 Smámynd: Sverrir Einarsson

Það var vitað að "sér atkvæði"  Ólafs Barkar myndi ekki breyta neinu svo það skifti ekki máli. Ættli hann hefði skilað sératkvæði ef það myndi hafa áhrif á niðurstöurnar....ni varla.

Sverrir Einarsson, 18.3.2007 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband