Leita í fréttum mbl.is

Sjá roðann í austri!

Í síðustu viku var umræða um stefnumál hins nýja meirihluta í borginni. Þar hafði Hanna Birna Kristjánsdóttir sig talsvert í frammi og vildi fá að vita hvort nýi meirihlutinn hefði stefnu og hver hún væri ef eitthvað lægi fyrir í þeim efnum. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, svaraði með jafnafdráttarlausum og snaggaralegum hætti og hans er siða, en eftir dúk og disk muldraði hann eitthvað um að það væri alveg skýrt að sér fyndist það ekkert lykilatriði að REI-listinn gerði með sér málefnasamning og kynnti hann sérstaklega.

Nú, já; jæja. Það má svo sem hafa skoðun á þeirri afstöðu borgarstjóra til borgaranna (og hann talar væntanlega fyrir hönd meirihlutans alls), en ég nenni ekki að rekja hana hér. Lesendur og Reykvíkingar eru sjálfsagt fullfærir um það og geta þá endurgoldið Degi trúnaðinn þegar þar að kemur. En ég hjó eftir öðru. Degi fannst þessar spurningar Hönnu Birnu eitthvað óþægilegar, en hann kvað samt ekki ætla að

erfa hofmóðinn eða hortugheitin við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarfulltrúa.


Mér þótti borgarstjórinn tala af fullmiklum myndugleik; svona eins og hinn smurði og goðumlíki konungur borgríkisins hefði af náð sinni ákveðið að sussa á lýðinn fremur en að láta húðstrýkja hann, eins og rétt væri.

En að öllu gríni slepptu: Hefði Dagur látið þessi orð falla við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson eða Gísla Martein Baldursson? Ég held ekki. Ég held þvert á móti að þarna sé borgarstjórinn að tala niður til Hönnu Birnu með þessum hætti og þessum orðum af því að hún er kona. Svona hefði hann aldrei talað til karlmanns.

Hvað ætli Sóley Tómasdóttir, formaður Mannréttindanefndar Reykjavíkurborgar, hafi um það að segja? Hún tjáir sig oft af minna tilefni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þótt erfitt sé að henda reiður á hvað borgarstjóri vill segja eða ekki segja í orðaflaumnum má þó ráða niðrandi merkingu orða hans til Hönnu Birnu.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.11.2007 kl. 11:57

2 identicon

Humm. Mér þykir þú nú verða helst til langsóttur hérna. Er eitthvað nýtt í þessu - er Dagur að ráðast fastar á Hönnu Birnu en almennt gerist í henni pólitík? Var það ekki karlmaður sem sagði við karlmann: skítlegt eðli. Var það ekki karlmaður sem sagði um annan karlmann að hann væri: drusla? Að erfa hofmóðinn og hortugheitin getur varla talist að talað sé niður til Hönnu Birnu. Er þetta ekki frekar vitnisburður um að Dagur álíti Hönnu Birnu vera leiðtoga sjálfstæðismanna í borginni og að hann beri virðingu fyrir henni sem stjórnmálamanni?

Grímur (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 12:02

3 identicon

Mig minnir að það hafi verið í skoðanadálknum Huginn og Muninn í Viðskiptablaðinu fyrir skemmstu að sagt var um Þórunni Sveinbjarnardóttur að hún væri í "starfskynningu í umhverfisráðuneytinu". Ætli sá sem hélt þar um penna hefði látið álíka orð falla ef Guðlaugur Þór Þórðarson eða Björgvin Sigurðsson ættu í hlut?

Bergsteinn Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 12:28

4 Smámynd: Andrés Magnússon

Þeir hrafnar í Viðskiptablaðinu fjalla um fjölda fólks og sjaldnast af sérstakri stimamýkt. Raunar held ég að svipuð orð hafi einmitt verið látin falla um Guðlaug Þór Þórðarson og hvað ætli auminga iðnaðarráðherrann megi þá segja? Eða utanríkisráðherrann?! Þeir eru óvægnir blessaðir, með öllu sínu fjaðrafoki, en ég held þeir fari ekki í kyngreinaálit.

Það er hins vegar rétt, að ég hugsa að Skallagrímur hefði veigrað sér við að kalla konu druslu, þar sem það orð getur haft aðra merkingu þegar það er viðhaft um konu. Hið skítlega eðli er aftur á móti alveg jafnskítleg athugasemd, hvort sem hún er höfð um konu eða karl

Ég fer ekki ofan af því að konungur árroðans, leiðangursstjóri borgarmeirihlutans (sem ekki veit hvert hann er að fara eða vill ekki upplýsa það) valdi þessu tilteknu orð í ljósi kynferðis andmælandans. Og varla getur það farið framhjá nokkrum manni að Dagur var að tala niður til hennar.

Andrés Magnússon, 14.11.2007 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband