Leita í fréttum mbl.is

Vandræði á Suðurlandi

Úrslitin í prófkjöri sjálfstæðismanna á Suðurlandi komu mér að mörgu leyti í opna skjöldu. Drífa Hjartardóttir á Keldum húrraði niður listann og Guðjón Hjörleifsson sömuleiðis. Ég fæ ekki séð að það hafi verðskuldað fall hjá þeim. Eins finnst mér verra að Gunnar Örlygsson hafi ekki fengið betri útkomu í prófkjörinum, þó ekki væri nema vegna þess að ég tel að við eigum að fagna týndum sauðum.

Stóri skandallinn er þó sigur Árna Johnsen, sem vafamál er að megi taka sæti á Alþingi. Ekki vegna þess að aldrei megi fyrirgefa mönnum yfirsjónir, þvert á móti ber okkur að finna fyrirgefningu í hjarta okkar gagnvart þeim, sem eitthvað verður á. En — svo ég haldi nú áfram á trúarlegum nótum — þá þarf hinn syndugi líka að sýna iðrun og yfirbót. Árni Johnsen hefur ekkert slíkt gert.

Hann notfærði sér aðstöðu sína sem kjörinn fulltrúi almennings til þess að skara eld að eigin köku og rauf þannig trúnað við kjósendur sína, þjóðina og lýðveldið. Og síðan þegar upp komst laug hann fullum hálsi. Í því samhengi leyfi ég mér að benda á grein, sem ég skrifaði á Strikið um þetta fyrir rúmum fimm árum.

Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn muni gjalda þessa frambjóðanda um land allt. Ég veit það að minnsta kosti um sjálfan mig, að ég mun eiga erfiðara með að kjósa Sjálfstæðisflokkinn vegna Árna. Ég vil ekki eiga það á hættu að mitt atkvæði verði til þess að gera Árna Johnsen að þingmanni í jöfnunarsæti. Kosningareglur eru hins vegar þannig að meðan sérframboð geta veitt atkvæðum sínum áfram með því að vera með sömu listabókstafi (t.d. DD) er engin leið að koma í veg fyrir að atkvæði nýtist öðrum til jöfnunar. Hvað á það að þýða?

Hvaða úræði koma til greina til þess að stöðva framboð Árna Johnsen í nafni og skjóli Sjálfstæðisflokksins? Samkvæmt skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins þarf Miðstjórn flokksins að staðfesta framboðslista, svo að hann verði boðinn fram í nafni flokksins. En er hún líkleg til stórræða? Miðstjórnin lét gott heita að stórfellt prófkjörssvindl átti sér stað í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu þingkosningar, svo menn geta varla vænst myndugleika úr þeirri átt. Ekki virðast meiri töggur vera í framkvæmdastjórn flokksins. Og hvað? Á maður að lifa í voninni um að Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja víki Árna úr félaginu og þar með flokknum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lítt held ég að Andrés Magnússon þurfi að óttast að hans atkvæði komi Árna Johnsen á þing. Kjósendur í Suðurkjördæmi verða örugglega einfærir um það. Maður í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í því kjördæmi verður tæplega uppbótarþingmaður  með atkvæði Andrésar Magnússonar.

Eftir að hafa nokkrum sinnum séð og heyrt í  Andrési Magnússyni í fjölmiðlum hefur mér fundist maðurinn oft á tíðum eiga sína góðu spretti. En eftir að hafa lesið jafn fordómafullan pistil eins þann sem hann hefur sett hér á síðuna sína, verður Andrés Magnússon  í mínum ranni ekki tekinn alvarlega og skoðanir hans framvegis metnar í ljósi þessa pistils.

Vonandi hefur Andrés Magnússon efni á að dæma fólk jafn hart og hann gerir gagnvart  jafn ágætum manni og Árna Johnsen. "Sá kasti fyrsta steininum, sem syndlaus er". 

Eyjamaður

Gísli Valtýsson (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 14:43

2 Smámynd: Andrés Magnússon

Ég átta mig ekki alveg á því hvaða merkingu Gísli Valtýsson leggur í orðið „fordóma“. Afstaða mín til framboðs Árna mótast einmitt af fortíðinni og þeim víðtæka siðferðisbresti, sem hann sýndi af sér. Ég er því ekki að dæma hann fyrirfram, það er búið að dæma hann. Í því samhengi er vert að minna á að lögin eru lágmarksviðmið um breytni manna, yfirleitt setjum við markið hærra. Kannski ég skrifi nánar um það við tækifæri. En þar sem Gísli tilgreinir ekki í hverju hann telur fordómana felast get ég eiginlega ekki svarað honum betur.

Hitt er annað mál, að ég sé ekki betur en að það örli á fordómum hjá Gísla sjálfum, þegar hann lýsir því yfir að hann muni ekki taka mig alvarlega héðan í frá — sama hvað ég segi — vegna þessa skrifs. Og öll mín skref ætlar hann að skoða í ljósi þess!

Þetta þykja mér merkileg viðbrögð hjá fjölmiðlamanni (Gísli er útgefandi Eyjafrétta). Eigum við ekki að láta rök og staðreyndir tala sínu máli? Eða skiptir meiru hver talar? Ég veit í hvorn flokkinn ég vil skipa mér. Hún snýst nú samt!

Andrés Magnússon, 14.11.2006 kl. 15:24

3 identicon

"Eigum við ekki að láta rök og staðreyndir tala sínu máli? Eða skiptir meiru hver talar"

Hehe, er þetta ekki akkurat málið, eiga ekki rök og staðreyndir að tala sínu máli í kosningu suðurkjördæmis, sjálfstæðisfólkið hefur talað og það vill Árna J. á þing, það er deginum ljósara og tölurnar tala sínu máli þar. "Eða skiptir meiru hver talar", verður það kannski þannig það verður ekki hlustað á þau þúsundir manna sem kusu Árna, ef svo er þá verður Sjálfstæðisflokkurinn búinn að endurskilgreina lýðræði uppá nýtt og ef svo fer þá vill ég ekki láta mitt atkvæði í hendur þess flokks og öruggt að margir munu einnig hugsa það sama.

Sjálfstæðismaður (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband