Leita í fréttum mbl.is

Bjargvættir eða bullukollar

Orkuveita Reykjavíkur burt frá Hellisheiði og Jemen

Og ég sem var alveg viss um að Kjartan bróðir væri kominn heim frá Jemen!

Grínlaust þá er nærvera OR í Jemen engin umfram viljayfirlýsingu um frekari viðræður milli REI og Rafveitu Jemen um mögulega samvinnu á sviði jarðhitamála. Eins og fram hefur komið er Saving Iceland hins vegar ekki áfram um opinskáar viðræður. Það segir sitt um virðingu þeirra fyrir lýðræðinu. Að ekki sé minnst á lög og reglu, en hópurinn telur sig augljóslega vera á einhverri hnattrænni undanþágu. Hvaða viðbrögð eru þá viðeigandi við aðgerðum þeirra?


mbl.is Með aðgerðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Bullukollar.

Kjartan er heiðarlegur, sannur og horskur stjórnmálamaður og hinn vammlausasti í þeim efnum.

Ég verð þó, að segja eitt, hann mætti fara nær hinni þjóðlegu rósemi og treysta ekki um of, gráðugum fésýslumönum.

Það veit ég,a ð hann passar sig á en aldrei er nægjanlega varlega farið í viðskiptum við ofurfrekjur, líkt og í ljós kom í Rei Rei og Ró Ró málum öllum.

Þar geystust Geysi Green menn af flgrúppu-hungri miklu fram og vildu eignast með húð og há allt sem kjósendum var ætlað að notta til framvindu síðar, svo sem virkjanir og hvaðeina.

Miðbæjaríhaldið

varfærinn þjóðernissinni

Bjarni Kjartansson, 28.7.2008 kl. 15:32

2 Smámynd: Karl Tómasson

Þegar ég hitti Kjartan á dögunum í Mosó, varð mér hugsað, hvar hef ég hitt þennan mann áður. Svona getur maður verið vitlaus kæri Andrés. Hann er sem sagt bróðir þinn. Ég get ekki sannara sagt, það vissi ég ekki fyrr en nú.

Ég gleymi aldrei umsögn þinni um Hugarfóstur aðra plötu okkar Gildru félaganna.

Hafðu það alltaf sem best.

Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 4.8.2008 kl. 00:17

3 Smámynd: K Zeta

En Kjartan valdi sér Borgarstjórann?

K Zeta, 11.8.2008 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband