Leita í fréttum mbl.is

Ríkisstjórn í taugaáfalli

Don Quixote og Sancho Panza 

Ég á bágt með að skilja vanda ríkisstjórnarinnar. Af hverju tekur hún sér ekki bara alræðisvald og fangelsar stjórnarandstöðuna?

Það er nefnilega með ólíkindum að hlusta á fýluna, sem lekur af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra yfir því að Alþingi vilji hafa eitthvað um það að segja hvaða lög ná fram að ganga hjá löggjafanum. Hún virðist blátt áfram undrandi á þessari ósvífni þingsins að vilja ekki bara taka við frumvörpum og samþykkja þau sisona.

Ég heyrt þessi sömu sjónarmið enduróma hjá ýmsum vinum mínum, sem fylgja Samfylkingunni eða vinstrigrænum að málum (taka verður fram að ekki eru allir mínir vinstrigrænu vinir á þessari skoðun), en það er eins og þeir átti sig ekki á því að ríkisstjórnin er minnihlutastjórn og getur ekki farið sínu fram í krafti þingstyrks.

Raunar er engu líkara en að forystumenn ríkisstjórnarinnar séu haldnir sömu afneitun. Þegar litið er til verkefnaskrár ríkisstjórnarinnar hefði hún verið afar metnaðarfullt plagg hjá ríkisstjórn með 2/3 þings að baki sér og heilt kjörtímabil framundan. Hjá minnihlutastjórn með 24 þingdaga í kortunum er það auðvitað tómt mál að tala um. Hreinlega galið. Mesta undrið er þó að þetta skuli gerast hjá ríkisstjórn, sem studd er af þingflokkum, sem sjálfir hafa sagt að þeir séu umboðslausir. Og nú vill hin umboðslausa minnihlutastjórn, sem var mynduð sérstaklega til þess að flýta kosningum (af því að þær máttu ekki bíða eina stund) fara að fresta kosningunum mikilvægu! Skyldu ráðherrarnir lúra á nýrri könnun?

Ruglið í þinginu

Þetta ástand hefur haft áhrif á ráðherraliðið og þingið, sem manni er svo sem sama þótt að skjálfi lítils háttar. En þetta er farið að valda vanda úti í þjóðfélaginu og það má ekki við meiru af svo góðu. Það er styttist í að landinu væri betur komið stjórnlausu en með þennan söfnuð; óvissan væri minni þannig. En áfram heldur ruglandinn í stjórninni og hann eykst með tímanum. 

Þetta rugl hefur sést afar vel í Seðlabankafrumvarpinu. Það ber með sér að vera hrákasmíð og ætlað til einhvers allt annars en sagt er opinberlega, sumsé að reka Davíð án þess að reka hann af því að lögin leyfa þessu liði ekki að reka hann. Eða aðra Seðlabankastjóra. Og það er fín ástæða fyrir því að það er þannig. Þar með er ekki sagt að Seðlabankastjóra geti ekki orðið svo á í messunni að hann verði að fara, en þá þarf líka að sýna fram á það og gera það rétt. En þessari ríkisstjórn virðist fyrirmunað að gera nokkurn skapaðan hlut rétt.

Þessi ofuráhersla á Seðlabankafrumvarpið og hvernig stjórnin getur ekkert annað aðhafst bendir til þráhyggju, sem stjórnin verður að ráða bót á. Verri eru þó ranghugmyndirnar og hið brenglaða sjálfsmat Jóhönnu & co. Ef þetta Seðlabankamál skyldi nú taka enda á undan ríkisstjórninni eru nefnilega fleiri stórmál á döfinni. Þar ber hæst harla metnaðarfullar og róttækar breytingar á stjórnarskránni, en fyrirhugaðar breytingar á kosningalöggjöfinni eru litlu minna róttækar.

Hvað stjórnarskrárbreytingarnar áhrærir er erfitt að sjá hvers vegna þær eru svona brýnar. Allra síst þó tillagan um að gera stjórnarskrárbreytingar auðveldari og einfaldari, sem manni skilst að eigi að vera einhvers konar undanfari innlimunar Íslands í Evrópusambandið. Þá er þetta lið að misskilja tilgang stjórnarskrárinnar fullkomlega. Stjórnarskráin er sá grundvöllur, sem öll önnur lög eru reist á, og það á að vera erfitt að breyta henni. Helst ætti hún náttúrlega að vera þannig að henni þyrfti aldrei að breyta. Fyrirætlun þessarar umboðslausu minnihlutastjórnar er hins vegar að búa svo um hnútana að henni megi breytast nánast eftir hentugleikum. En hún á ekki að blakta í vindinum, nóg er nú af vindhönunum samt.

Hvað má þá segja um fyrirhugaðar breytingar á kosningalögunum? Enginn af stjórnarliðinu hefur verið fáanlegur til þess að greina frá því nákvæmlega út á hvað þær gangi, af þeirri einföldu ástæðu að minnihlutastjórnin hefur ekki hugmynd um það sjálf. Hún vill bara „auka persónukjör“. Og enginn er neinu nær. Þó að kosningabaráttan sé hafin, út um allar trissur séu flokkarnir að velja á listana með margs konar hætti og menn miði þátttöku sína í gangverki lýðræðisins við þokkalega og vel þekkta löggjöf, ætla þessir snillingar að fara að hringla í henni kortér fyrir kosningar og hóta alls kyns ákvæðum til þess að hjálpa flokkunum að raða fólki „rétt“ á listana. Þessa sömu lista og kjósendum verður svo falið að ryðja með „auknu persónukjöri“! Og það er í alvöru ásetningur minnihlutastjórnarinnar að þjösna þessu dularfulla frumvarpi í gegnum þingið, jafnvel þó ekki ríki eining um það. Eru þess nokkur dæmi að breytingar á kosningalögum séu keyrðar í gegn nema með breiðri samstöðu? Kannski það verði ekki vanþörf á alþjóðlegum kosningaeftirlitsmönnum.

Hver er sinnar ógæfu smiður 

Ekki þar fyrir, ég hef ekki sérstakar áhyggjur af því að nokkurt af þessum frumvörpum nái fram að ganga. Innan stjórnarinnar eru þegar talsverðir brestir og hún er hratt og örugglega að uppgötva hinn hryllilega sannleika: að hún er aðeins með minnihluta á þinginu og getur ekki farið sínu fram að geðþótta Jóku og Gríms. Það hefðu flestir áhugamenn um stjórnmál getað sagt þeim fyrirfram. Jafnframt, að einmitt þess vegna yrði stjórnin að velja mál sín af stakri kostgæfni og þoka þeim áfram af mikilli tillitssemi í þingi, vildi hún á annað borð aðhafast eitthvað frekar en starfsstjórn ber.

Það hentar stjórnarflokkunum að hamast að Framsóknarflokknum og kenna honum um allar sínar ófarir. En það er þýðir ekki að kenna framsóknarmönnum um ruglið. Þeir sögðu hátt og snjallt að þeir myndu að svo stöddu verja stjórnina vantrausti. Í því felst skuldbinding þeirra og öðru ekki, þó stjórnarliðið vilji ímynda sér eitthvað annað fyrst hún hafði fyrir því að kynna framsóknarmönnum helstu áform sín þegar verið var að mynda stjórnina. 

Enn síður fer það þessari ríkisstjórn vel að krefjast þess að þingmaður í flokki utan stjórnar hlíti ímynduðu samkomulagi og reglum ríkisstjórnarinnar í störfum sínum á þinginu. Hún er með öðrum orðum að segja að sannfæring þingmannsins skipti engu þegar ríkisstjórninni finnst annað. Já, hún er mikil lýðræðisástin hjá stjórninni, að ekki sé minnst á geðprýðina og jafnvægið. Einmitt þannig fólk, sem best er að fela að breytingar á stjórnarskrá og kosningalöggjöf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Þetta eru mest smámenni sem vigta afar lítið í raunheimum.

Bullarar sem falla á sínum eigin prófum.  Dæmi:

Liðið vælir um að ekki sé borin hin minnsat virðing fyrir Alþingi (þegar þetta vinstra dót er í stjórnarandstöðu) en snýr svo blaðinu við óðar og eitthvað klikkar í nefndum og þeir fá ekki sitt strax fram. Þá senda þau alþingismenn heim eða á skrifstofr sínar og fresta fundum.  (börnin henda sér niður á búðargólfin þegar þau fá ekki nammi.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 24.2.2009 kl. 22:52

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þið eruð mér að skapi, báðir tveir.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.2.2009 kl. 23:41

3 identicon

Afar góð skrif Andrés!

Máni Atlason (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 00:30

4 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Jóhanna er farin að hljóma nákvæmlega eins og Davíð og Geir hafa hljómað þegar þeir hafa viljað að Alþingi virkaði eins og lúgusjoppa fyrir lagafrumvörp.  Oftast nær virkar það þannig, en einstaka sinnum kroppar það aðeins í málin.  Það að Höskuldur hafi viljað fresta málinu um tvo daga til að bíða eftir frekari upplýsingum getur nú varla drepið liðið.  Þetta er mjög aumt allt saman, mjög aumt.

Góður pistill Andrés.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 25.2.2009 kl. 01:10

5 Smámynd: Hermann

Þú átt bágt með að skilja já.

Vandi er líklega sá að 90% af þjóðinni samkvæmt könnunum vill davíð burt og er Núverandi ríkisstjórn að reyna sitt besta til að gleðja þjóðina en ég er ekki að segja að þetta frumvarp eigi einhvern rétt á sér en hvað eiga þau að gera?

Þér finnst að minnihlutastjórn eigi ekki neinn rétt á að ráða neinu og talar um mörg frumvörp sem NÚVERANDI ríkisstjórn fær ekki í gegn en hvaða önnur tilgangslausu frumvörp eru þetta?

Ef að núverandi ríkisstjórn er minnhlutastjórn hvað er þá stjórnarandstæðan?

Annað

Bjarni ertu búinn að vera að hlusta á sjálfstæðisflokkinn seinustu vikur, hverjir láta eins og krakkar?þessi póstur þinn er fáranlegur.

Hermann, 25.2.2009 kl. 02:46

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Illa ert þú læs Hilmar, að telja Sigurð Viktor í hópi Sjálfstæðimanna.

Veit um mig, að ég er í Sjálfstæðisflokki og stoltur af því að öðru leiti en þjónkun hans við Kvótakerfið og EES, að ekki sé nú talað um Verðtrygginguna en allt er þetta kerfi nú úr hugarfylgsnum Krata með einum eða öðrum hætti.

Miðb´jaríhaldið

ánægður með Davíð í þessu máli

Bjarni Kjartansson, 25.2.2009 kl. 09:19

7 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Sé það taugaáfall sem hrjáir þessa ríkisstjórn, þá hlýtur sú síðasta að hafa verið með lömunarveikina

Marinó G. Njálsson, 25.2.2009 kl. 10:49

8 identicon

"Allt Flokkshollir Hólmsteinar sem allt aumt mega sjá" - Hvað meinaru með að ég megi allt aumt sjá?

Þvílík örlagaþvæla.

Máni Atlason (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 15:18

9 Smámynd: Andrés Magnússon

Rólegan æsing, piltar!

Andrés Magnússon, 26.2.2009 kl. 09:27

10 identicon

haha.   Voru þið alltaf að sniffa lím á SUS fundum i den?

Erfið eru sporin frá valdastöðunum.  Það er eðlilegt að ykkur finnist mikið um verkefnalistann hjá nýju valdhöfunum.  I fyrsta lagi skópuð þið með stuðningi ykkar við arðrán og valdaskiptingar fyrri stjórna þennan lista.  Það var ykkur að kenna en ekki þeim. Þið komuð þeim til valda.   Þið sem kjósendur kusuð þetta yfir okkur í nær 20 ár.  Þið hélduð þeim að völdum sama hve mörg lög þeir brutu.

Núna loksins eru nefndir sjálfstæðisflokks eru farnar að viðurkenna að jafnvel bönkunum hafi verið stolið. 

 "Hvað stjórnarskrárbreytingarnar áhrærir er erfitt að sjá hvers vegna þær eru svona brýnar."  Varst þú ef til vill í dái seinustu mánuði?  Það er varla setning þarna í þessari grein sem lýsir ekki bara firringu ykkar og skeytingaleysi gagnvart ástandinu sem framsókn og sjálfstæðisflokkur hafa komið hér á.  Þið eruð að lýsa því hvað þið eruð. Flokksgæðingar.  Menn sem takið flokkinn fram yfir landið.  Sjálfstæðismenn fram yfir íslendinga.   Eftir að þið lesið þetta munuð þið bara slökkva á rökhugsuninni og snúa ykkur að því hvernig hægt er að líta framhjá staðreyndum og gagnrýna allt sem sagt er á móti flokknum.   Skiptir engu hvaða ástand hann hefur komið okkur í.   Þið eruð til fyrirmyndar.   Farið nú að sjóða saman einhverja vitleysu eins og hann Davíð mokaði í landan hér um daginn. 

Ólafur (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband