Leita í fréttum mbl.is

Tilgangur Seðlabankafrumvarpsins kemur í ljós

Össur hlær við fót. 

Ég sá að Gísli Freyr Valdórsson, vinur minn og samstarfsmaður, var að fetta fingur út í fréttaflutninginn af þingstörfum Höskuldar Þórhallssonar undanfarna daga. Undir það get ég flest ef ekki allt tekið. Mætti raunar nefna fleira til.

Við eigum þó ekki að láta umgjörðina taka hug okkar allan. Stundum er innihaldið einhvers virði. Það á t.d. við um þessa viðhengdu frétt Þóru Kristínar Árnadóttur, sem Gísli Freyr gerði að umtalsefni. Í fréttinni leynist nefnilega frétt. Stórfrétt jafnvel, sem óskiljanlegt er að fjölmiðlar hafi ekki dregið fram með neinum hætti.

Undanfarnar vikur hafa forsætisráðherra og stjórnarliðar keppst við að fullvissa þjóð og þing um að Seðlabankafrumvarpið sé algerlega og einungis lagt fram á faglegum forsendum, að með því sé verið að styrkja Seðlabankann, breyta stjórnkerfi hans og nútímavæða. Hinu vísa þeir á bug, að tilgangur frumvarpsins sé sá að hrekja Davíð Oddsson úr Seðlabankanum, sama hvað það kostar.

Þangað til að Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra sagði óvart sannleikann í málinu í þessari frétt, alveg undir blálokin.

… Ég held líka að þetta sé ekki gott fyrir Framsóknarflokkinn […] að það líti út [fyrir] að einn af þingmönnum Framsóknarflokksins sé að leggja sjálfan sig undir í vörn fyrir Seðlabankastjóra.

Þarna játar Össur hver er hinn eiginlegi tilgangur frumvarpsins, að sérhver töf á framgangi þess sé til þess eins að koma Seðlabankastjóra til varnar gegn gerræðinu.

Auðvitað vita allir menn þetta, þó minnihlutastjórnin hafi viljað láta öðru vísi. En þar er vandi hennar og veikleiki í hnotskurn: Hún getur ekki komið hreint fram — hvorki við þingið né fólkið í landinu. Að ekki sé minnst á gegnsæi, góða stjórnsýsluhætti, fagleg vinnubrögð og það allt.


mbl.is Höskuldur í háskaför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað er tilgangur Seðlabankafrumvarpsins að koma Davíð út.  Það segir sig sjálft og í rauninni óheiðarlegt að halda öðru fram.

það er samt sem áður gríðarlega mikilvægt að losna við Davíð úr Seðlabankanum hann nýtur ekki trausts.  Hvorki faglega né persónulega.  Fyrir utan allt fíaskóið sem hann á heiðurinn af.  

Uppbygging landsins er óhugsandi með Davíð í Seðlabankanum.

teitur atlason (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 12:10

2 identicon

Davíð Oddsson var forsætisráðherra Íslands og stjórnaði einkavinavæðingu bankanna frá upphafi til enda.
Aðal hugmyndafræðingur hans við þetta verk var Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Davíð Oddson er 100% ábyrgur fyrir þessu ferli.

Ég vil einnig vekja athygli ykkar á þessari staðreynd.
 
Samkvæmt  91. grein almennra hegningarlaga er Davið Oddson  lögbrjótur!


Úrdr. úr X. kafla almennra hegningarlaga -

91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
 Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem falsar, ónýtir eða kemur undan skjali eða öðrum munum, sem heill ríkisins eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin.
 Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri.
Hafi verknaður sá, sem í 1. og 2. mgr. hér á undan getur, verið framinn af gáleysi, skal refsað með …1) fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru fyrir hendi.
 
Lýsing refsiverðs verknaðar:

Í Kastljósþætti Ríkissjónvarpsins þriðjudaginn þann 7. október 2008 skýrir seðlabankastjóri Davíð Oddsson frá ráðagerðum og ályktunum ríkisins um málefni, sem heill þess gagnvart öðrum ríkjum er undir komið, og hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum.

Tjón vegna þessa verknaðar fyrir íslenska þjóð nemur 6000 miljarða ISK!

Embættismanni sem brýtur af sér á þennan hátt ber umsvifalaust að víkja úr starfi.

Sjá:
http://www.icenews.is/index.php/2008/10/13/richard-portes-analyses-the-shocking-errors-of-icelands-meltdown/

"Mr Oddsson is part of the problem, not of any solution, and should resign immediately."

Jón (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 13:07

3 identicon

Þessar landráðapælingar eru alveg dásamlegar. Þær eru auðvitað arfavitlausar, en ég heyrði nú engu að síður í útvarpsfréttum RÚV um daginn frétt sem hófst á orðunum "Ekki er hægt að saksækja þá sem valdir eru að hruni íslensku bankanna fyrir landráð, að sögn lektors við lagadeild Háskóla Íslands.." eða eitthvað slíkt.

Ég bjóst alveg eins við því að næsta frétt yrði "Jörðin er ekki flöt að sögn prófessors í jarðfræði við Háskóla Íslands..."

Máni Atlason (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 13:38

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Væri ekki bara rétt að senda Davíð í útlegð, kannski til N-Kóreu, þá myndi allt batna hér. 

Æ, nei, N-Kórea má víst ekki við því, því að ástandið þar er nú nógu slæmt fyrir. 

En til tunglsins, þá væri heimsbyggðinni borgið, hagvöxtur tæki við sér allsstaðar og allt yrði bjartara.  Allir yrðu ánægðir bæði í austri og vestri.  Aldrei myndi heimsbyggðin fara í gegnum efnahagsþrengingar aftur.

Þvílíkur örlagavaldur sem Davíð Oddsson er.

Bestu kveðjur,

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.2.2009 kl. 14:34

5 Smámynd: Liberal

Jón, ég held hreinleg að þitt komment sé það heimskulegasta sem ég hef séð alla vikuna, og hafi þar með unnið gríðarlega erfiða samkeppni.

Fæddistu svona vitlaus, eða er þetta afrakstur áralangrar þjálfunar og þrotlausra æfinga? 

Liberal, 26.2.2009 kl. 14:39

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakka góðan pistil.

Jóhanna og einkum Steingrímur eru að grafa sér pólitíska gröf. Verði þeim að góðu.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.2.2009 kl. 14:41

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég er ekki viss um að hægt sé að draga svona víðtæka ályktun af orðum Össurar. Þótt andstaða við frumvarpið sé vörn fyrir bankastjórann leiðir ekki af því að frumvarpinu sé beint gegn honum. Atvinnumissir hans gæti til dæmis verið afleiðing frumvarpsins, en ekki tilgangur þess.

Hitt er svo annað mál að auðvitað snýst þetta um að losna við karlinn, eins og allir vita.

Þorsteinn Siglaugsson, 26.2.2009 kl. 15:18

8 identicon

Seðlabankinn er gjaldþrota!

Davíð Oddsson setti bankann á hausinn!

Það er þjóðarnauðsyn að fá hæfa menn til að endurreisa bankann og byggja upp traust á islenska efnahagskerfinu.
Nú eru íslensku "Kvislingarnir",  föðurlandssvikararnir á Alþingi að tefja þetta mikilvæga mál með málþófi og útúrsnúningum.

Sjálfstæðisflokkurinn er  hópur landráðamanna sem hefur gert þjóðina gjaldþrota. Fram á síðustu stund reyna þeir að valda sem mestum skaða og eyðileggja framtíð þjóðarinnar. 

Jón (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 15:20

9 identicon

Hvaða dans er þetta.  Stjórnin er ekkert að þykjast.  Þeir lýstu þessu yfir á meðan þeir voru í stjórn með sjálfstæðismönnum.  Þeir sögðu að eðlilegt væri að skipta um stjórn í seðlabankanum.  Össur er bara að árétta að Höskuldur sem er að tefja fyrir stjórninni til að henni verði minna úr verki sé líka að ganga erinda Davíðs.  Hvað er verið að fela?? Ekkert.  Fullt af minni spámönnum eins og hér halda öðru fram geta haldið rangindum fram.  Þeir vita betur og eru ekki að skylmast nema skylminganna vegna.

 Kannski Andés sem lýsir hlutunum frá hægri vængnum eigi erfitt um útsýni vegna íhaldsforsins sem byrgir honum sýn.  Enda er í langan tíma búið að safnast í haugin sem Jóhanna á núna að laga á 80 dögum.  Með allan þingflokk Sjálfstæðismanna í tafaleik meðan þjóðarskútan brennur.  Þetta ert þú að styðja með þessu tali hér að ofan..  Með "nýja Framsókn" eða þriðja aflið í stjórninni slekkur alla von um að neitt gerist.

   Andrés,  í öllum sanngjörnum mönnum býr jafnaðarmaður.  :).  

Ólafur (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 01:27

10 Smámynd: Geir Ágústsson

Sumir virðast hafa misst af Kastljósar-viðtalinu við Davíð um daginn og framhjá mér hafa farið öll mótrök við það sem hann sagði þar, sem kom t.d. viðmælanda hans í galopna skjöldu.

Geir Ágústsson, 3.3.2009 kl. 23:15

11 identicon

Þetta viðtal var ein stór þvæla Geir.  Ef þú veist það ekki þá bið ég þig að kynna þér almennt hverning og hverjir eiga bankana.  Góðvinur Davíðs hann Kjartan Gunnarsson er bún að stýra sjálfstæðisflokknum í tugi ára.  Stjórnarmaður í LÍ.  Umgjörðin um allt þetta er sköpuð af þessum mönnum, seldu svo sjálfum sér allt góssið.  Davíð sat í seðlabanka sem hefði getað beitt bindiskyldu á þessa banka.  Davíð útskýrði í þessu viðtali að vegna nógra erlendra lána er óþarft að eiga varasjóð (bindiskila).   Mér finnst bara þetta viðtal vera skömm fréttamannsins í þessu tilviki.  

Endilega skoðaðu svo þetta.

http://www.youtube.com/watch?v=5egkmJRikKw

Davíð veit hvaða kór hann er að syngja fyrir.  Feitar húsmæður í vesturbænum sem hafa ekki nokkra hugmynd um það sem hann fullyrðir.  Hann segir ótal hluti í þessu viðtali sem eru rangir.  Hann veit það en hann veit líka að fullt af fólki veit ekki betur.  Það hefði verið gaman að sjá Jón baldvin á móti honum þarna.  Nei Davíð hætti að taka svoleiðis þegar Jón var búin að fara illa með hann nokkrum sinnum í beinni i den.

Ólafur (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband