Leita í fréttum mbl.is

Hvaða „við“ eigum lífeyriskerfið?

Helgi í Góu á miklu kúluláni að fagna.

Ég sé að minn kæri Bjarni Harðarson er ánægður með framtak gotterísfurstans Helga Vilhjálmssonar í Góu gagnvart lífeyrissjóðunum. Segir hann hreyfa mikilsverðu máli, sem sé „brask og hálaunastefna lífeyrissjóðakerfisins“. Það má vel vera, enda er Helgi sjálfsagt hvorki ókunnur braski né háum launum.

Mér leikur hins vegar hugur á að vita annað: Í hvaða lífeyrissjóði er Helgi og af hverju reynir hann ekki fyrst að betrumbæta hann áður en hann gengst fyrir því að Jóhanna Sigurðardóttir taki allan lífeyri landsmanna undir sinn náðarfaðm? Og það undir kjörorðunum „Við eigum lífeyrissjóðina!“

Ég á einhver lífeyrisréttindi, en mér dettur ekki í hug að fyrir vikið eigi ég kröfu á aðra lífeyrissjóði líkt og Helgi lætur. Enn síður að með því að setja inn nafn og kennitölu á „undirskriftasöfnun“ Helga á netinu geti ég eða hann eða Jóhanna í nafni þjóðarinnar slegið eign sinni á lífeyriskerfið og látið það haga sér að þörfum mínum, hans eða Jóhönnu.

Þetta er kannski einkennandi fyrir þjóðfélagsumræðuna heima þessi misserin, í upplausninni og umrótinu í kjölfar áfallsins stíga fram allir landsins lukkuriddarar til þess að koma á framfæri sérstökum áhugamálum sínum, gamalkunnum að vísu, en eiga að sögn sérstakt erindi nú. Ég hugsa að þeir keisarar muni flestir reynast klæðaminni en þær dansmeyjar, sem nú liggur mest á að uppræta. Væntanlega til þess að slá skjaldborg um heimilin og koma hjólum atvinnulífsins í gang, svo vitnað sé til vinsælustu flatneskjunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér þætti ákaflega gott að fá "mína lífeyrissjóðspeninga" nú þegar inná mína bankabók.  Ég get sjálfur séð um að ávaxta þá jákvætt eða neikvætt og þarf ekki hjálp "ofurlaunamanna" til þess.  Þeir taka alltaf sinn skerf sama hvort ég fæ mínus eða plús og það sama á við um stjórnir í sjóðunum.  Ég vil standa og falla með þeirri ávöxtun sem mér tækist að koma í gegn.

  Kannski fá þá börnin einhvern smáarf þar. 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 16:42

2 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Ég er sammála Páli.  Ég er skíthræddur um að stjórnmálamenn fari með einhverjum hætti að seilast í mína lífeyrispeninga eða stýra því hvernig sjóðirnir ávaxta sig.

Finnst reyndar líka að á þessum tímum ætti að bjóða fólki að lækka iðgjöld í lífeyrissjóði tímabundið og fá mótframlagið greitt úr. Þannig gætu margir aukið ráðstöfunartekjur sínar um 5% eða meira.  Ég er samt mjög hlyntur lífeyrissparnaði almennt.

Þorsteinn Sverrisson, 30.3.2009 kl. 21:53

3 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Ef það væri nú stærsta áhyggjuefnið okkar...

Helgi Jóhann Hauksson, 31.3.2009 kl. 02:44

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Andrés:

Ég er svo sammála þér að það hálfa væri nóg.

Ég er svo gjörsamlega búinn að fá nóg af þeirri grunnu og heimskulegu umræðu sem tröllríður þjóðfélaginu að ég legg til að gömlu kjörorði stjórnmálaflokks, sem ég þekki ágætlega til, verði breytt:

Bullið burt! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 31.3.2009 kl. 07:11

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Mæl þú manna heilastur kæri Andrés.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 16.4.2009 kl. 09:08

6 identicon

Já Andrés minn - ég er viss um að fólkið sem þarf núna að þola tugaprósenta rýrnun ævisparnaðarins er stolt af hæfni lífeyrissjóðanna til ávöxtunar. Fínt kerfi!

Hugi (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 15:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband