Leita í fréttum mbl.is

Fjör í fjölmiðlun

Það er stormasamt í blaðaheiminum þessa dagana. Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Blaðsins, staðfesti það á starfsmannafundi hér í morgun, sem við höfðum raunar heyrt í morgunfréttum RÚV, að hann hefði sagt upp ritstjórastöðu sinni. Hann bloggaði svo sjálfur um þetta, en áður hafði Steingrímur Sævarr Ólafsson vikið að þessu, en Reynir Traustason hafði skúbbað málið í gær.

Uppsögnin vekur vitaskuld fleiri spurningar en hún svarar, en sem innanbúðarmaður hér á Blaðinu ætla ég að geyma mér að ræða innri málefni þess. Þegar þetta er ritað er það enda nánast allt á vangaveltustiginu.

En það er ljóst að fjölmiðlafjörið verður mikið á næstunni. Nákvæmlega hvað Sigurjón ætlast fyrir er enn á huldu, en það er bæði rætt um að hann hyggist stofna glænýtt dagblað og eins að hann eigi að taka hræið af DV og gera að 7 daga dagblaði, sem gæti hæglega veitt Blaðinu harða samkeppni. Ég veit ekki hvað svona skvaldur er ábyggilegt. Sagt er að Sigurjón hafi tekið ákvörðun sína á ferð í Kaupmannahöfn um daginn; gæti ég þá ekki allt eins fabúlerað um að auðvitað muni hann taka til við að ritstýra næsta blaði Mediafonden í Hollandi eða Belgíu? Það væri a.m.k ekki fráleitt í ljósi þess að Sigurjón er með heillangan uppsagnarfrest og Ár og dagur, útgáfufélag Blaðsins, gæti sett lögbann á störf hans fyrir keppinauta Blaðsins á þeim tíma og jafnvel lengur eftir því sem klásúlurnar í samningnum kveða á um. Má benda á nýfallinn hæstaréttardóm í máli Opinna kerfa í því samhengi. 

Hvað sem því líður verður athyglisvert að sjá hvert Sigurjón sækir fjármagnið, sem þarf til þess að ýta nýju eða endurreistu blaði úr vör. Hann segir að 365 og Árvakur séu ekki í spilunum, en það gæti vel þýtt að Baugur kæmi við sögu. Og ef ekki Baugur þá eitthvert af dótturfyrirtækjum hans, líkt og það sem heldur Jóhanni Haukssyni úti á Útvarpi Sögu eða gefur út tímarit í samkeppni við 365 (sem aftur gæti verið skoðunarvert af Kauphöllinni eða einhverjum eftirlitsapparötum). Í því samhengi er rétt að benda á nýlegar bloggfærslur Páls Vilhjálmssonar um skyld efni. Og kannski maður ætti að líta sér nær í leit að peningaslóðinni. Og er minn gamli bekkjarbróðir Árni Hauksson ekki með eitthvert reiðufé í höndunum þessa dagana?

Þetta þarf hins vegar allt að skoða í samhengi og varðar ekki einungis framtíðaráform Sigurjóns. Það er ljóst að bæði Morgunblaðið og Fréttablaðið ætla að spýta í byssuna á næstunni og mér skilst að Viðskiptablaðið hafi lokið fjármögnun nýrrar sóknar, þar sem útgáfudögum verður fjölgað og fréttafókus þess ekki aðeins á viðskiptalífinu. Svo skilst manni að Sigríður Dögg Auðunsdóttir sé að fara stofna vikurit. Hvaðan henni koma fjármunir til þess — eða annað — verður svo fróðlegt að sjá.

Hvað sem verður er ljóst að það er mikið stuð framundan í bransanum. 


mbl.is Hræringar á blaðamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband