10.3.2007 | 13:36
Ávextir launaleyndar
Menn eru talsvert að ræða nýtt jafnfréttisfrumvarp, sem Magnús Stefásson félagsmálaráðherra boðaði í Þjóðmenningarhúsi á dögunum að yrði lagt fram á nýju þingi í haust. Helst hafa menn staldrað við afnám launaleyndar, sem mælt er fyrir um í því. Hin viðteknu viðhorf, sem þessi tillaga byggir á, virðast vera þau, að afnám launaleyndar [sé] líklega einhver árangursríkasta leiðin sem kostur er á til þess að leggja til atlögu við hina djúpstæðu meinsemd: Kynbundinn launamun. Eða svo sagðist Guðmundi mínum Steingrímssyni frá.
Ég dreg ekki í efa einlægan ásetning manna í þeim efnum, en mér finnst nokkuð á vanta, að menn hafi rökstutt að afnám launaleyndar sé árangursríkasta leiðin til þess. Sérhver íhlutun hins opinbera í frjálsa samninga er íþyngjandi og felur í sér dulinn kostnað, ómældan og mælanlegan. Ekki aðeins fyrir hlutaðeigandi heldur þjóðfélagið allt. Þá verð ég einnig að minnast á að mér finnst með ólíkindum í ljósi þess hversu aðkallandi vandinn er sagður vera hvað allar upplýsingar um meintan kynbundinn launamun hafa reynst vera óljósar og misvísandi; hinum ýmsu rannsóknum ber fráleitt saman, framsetning á niðurstöðum hefur reynst vera villandi og allri gagnrýni nánast tekið sem guðlasti. Hvað þá að sýnt hafi verið fram á með óyggjandi hætti, að launamunurinn sé í raun og veru kynbundinn.
Áður en menn ausa úr skálum reiði sinnar um það í athugasemdunum vil ég benda mönnum á að kynna sér grein Helga Tómassonar, dósents við Háskóla Íslands, doktors í tölfræði og fyrrverandi starfsmanns kjararannsóknanefndar, sem birtist í vetrartölublaði Þjóðmála árið 2005. Greinin bar fyrirsögnina Tölfræðigildrur og launamunur kynja og í henni leiddi dr. Helgi rök að því að ekki liggi fyrir upplýsingar, sem réttlæti staðhæfingar um kynbundinn launamun. Greinin hlaut furðulitla umræðu miðað við hversu glatt menn hafa rætt um kynbundinn launamun sem sjálfgefna staðreynd og þær alvarlegu ábendingar, sem dr. Helgi hafði fram að færa. Svona er þetta nú stundum á Íslandi þar sem unnt virðist að kveikja í þjóðfélaginu öllu með órökstuddum staðhæfingum, en þegar einhver leyfir sér að leggja orð í belg út frá staðreyndum máls, viðurkenndum vísindum og óyggjandi orsakasamhengi virðst þögnin grúfast yfir hann ef niðurstaðan er ekki í samræmi við hina viðteknu orðræðu rétttrúnaðar dagsins. Galíleó hvað?
Aftur að launaleyndinni: Afnám hennar með lögum er að mínu viti svo veigamikla íhlutun hins opinbera í samningsfrelsi borgaranna, að þar þurfa að koma mun afdráttarlausari og brýnni rök en þegar hafa verið lögð fram. Í því samhengi þarf að sýna fram á að launamunurinn sé í raun kynbundinn, en helgist ekki af öðrum aðstæðum. Þá þarf að sýna fram á að ekki sé unnt að ná sömu markmiðum með vægari aðgerðum hins opinbera eða öðrum hætti. Loks verður að sýna fram á það svo ekki verði um efast, að þessar aðgerðir séu í raun til þess fallnar að ná markmiðunum, en láta ekki nægja að greina frá því að einhver nefnd telji annað ósennilegt.
Nú er rétt að ítreka að frumvarpið gerir ekki ráð fyrir að launþegar verði skikkaðir til þess að láta laun sín uppi, heldur er fyrirboðið að atvinnurekendur geti gert það að skilyrði fyrir ráðningu starfsmanns, að honum sé bannað að veita þriðja aðila upplýsingar um laun sín eða kjör.
Afleiðingar ákvæðisins eru engan veginn ljósar, en þó held ég megi fullyrða að vinnuveitendur muni fremur veigra sér við að umbuna góðum starfsmönnum en áður. Eins hygg ég að menn hafi ekki hugleitt áhrifin á samkeppni fyrirtækja um starfsmenn, því ekkert í lögunum bannar atvinnurekendum að krefjast þess af umsækjendum að þeir veiti upplýsingar um kaup og kjör hjá fyrri vinnuveitanda og setji það sem skilyrði fyrir ráðningu. Finnst mönnum það frábær hugmynd? Enn eitt mætti tína til: Sumir sérfræðingar eru svo eftirsóttir og fágætir, að ráða verður þá framhjá launastrúktúr fyrirtækisins. Launin geta þannig orðið verulega hærri en hjá flestum yfirmönnum þeirra og önnur algeng viðmið á borð við starfsaldur, menntunarstig og því um líkt þurfa að fjúka út um gluggann. Slíkt væri varla hægt án áskilins trúnaðar.
Ein augljós afleiðing alls þessa er þó sú, að verktakasamningar munu aftur færast í vöxt. Er launþegum greiði gerður með því?
Í þessu tilviki, eins og flestum öðrum ráðagerðum, megum við ekki missa sjónar af mælanlegum staðreyndum um afleiðingarnar og tapa okkur í orðagjálfri um göfug markmið. Af þeim er ávallt nóg, en afleiðingarnar eru einatt á aðra og ófyrirséða lund. Jesús orðaði þetta fallegar í fjallræðunni: Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá (Matt. 7:16).
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:28 | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er ekkert nýtt að fólk geri geggjaða hluti og hagi sér eins og bjánar í góðri trú. Það er heldur ekkert nýtt að pólitík rétthugsun gangi út í öfgar og breytist í andhverfu sína. Við sáum það nýlega á umræðunni um fyrirhugaða ráðstefnu framleiðenda á kynferðislega opinskáu efni þar sem kastjósinu var skyndilega beint að mansali og barnaklámi sem kom þessum væntalegu ráðstefnugestum ekkert við. Umræðan gekk jafnvel enn lengra og náði sennilega toppnum í ”Smáralindarkláminu” í vikunni. Hvað launaleynd varðar eru gild rök bæði með og á móti en ég er ekki viss um að löggjöf, boð eða bönn þar að lútandi bæti eitt né neitt. Þessi pistill þinn er hins vegar athyglisvert innlegg í umræðuna.
Víðir Ragnarsson, 10.3.2007 kl. 15:10
Alveg er ég sammála þér með málsgreinina um skrif dr. Helga og umræðurnar á Íslandi.
Það er eitt sem ég hef velt fyrir mér varðandi afnám launaleyndar og það er eftirfarandi atriði sem ég lærði einu sinni í hagfræði-námskeiði
Eitt af megin skilyrðum skilvirks og samkeppnishæfs markaðar, er óhindrað og fullkomið upplýsingaflæði.
Er ekki afnám þess að fyrirtæki geti skikkað mönnum til að gefa ekki upp upplýsingar um laun, liður í því að auka upplýsingaflæði og þar með stuðla að samkeppnishæfum og skilvirkum markaði.
Leiðréttu mig endinlega, því ég held þú vitir meira en ég um hagfræði.
Hlynur (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 15:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.