30.7.2007 | 21:15
Hvar er Íslandsdeild Amnesty?
Ég bara spyr: Hvar er Íslandsdeild Amnesty? Hér á landi er fjöldi pólitískra fanga og hið opinbera kemst upp með að brjóta alþjóðasáttmála, stefna samskiptum við vinveitt ríki í hættu og vera á mála hjá erlendum stórfyrirtækjum.
Eða svo skilst manni á frétt, sem Saving Iceland hefur sent frá sér, en samkvæmt henni eru dauðasveitir Ríkislögreglustjóra og Rio Tinto í óða önn við að smala saman frelsissveitum stóriðjuandstæðinga. Ætli það verði settar upp bráðabirgðafangabúðir á þjóðarleikvanginum? Manni sýnist að Kynþáttaeftirlitið hafi komið að málum með því að mæla út utlendigar þegar önnur ámóta frétt er lesin á vef samtakanna.
Baráttuaðferðir þessa hóps dæma sig auðvitað sjálfar og hugmyndafræðingana, sem að baki standa. En maður skyldi samt ekki vanmeta skaðann, sem slíkir hópar getað valdið. Ekki endilega hér á landi, heldur ekki síður erlendis með svona málflutningi. Allur almenningur mun seint sjá rausið, en svona fréttir eiga aldeilis upp á pallborðið vinstrivillingunum, sem vilja trúa nánast hverju sem er, svo framarlega, sem það styður óra þess um stóru samsærin. Og slíkt getur hratt undið upp á sig með ófyrirsjáanlegum afleiðingum, eins og menn þekkja af hinum fjölþjóðlega flokki iðjulausra róttæklinga, sem ferðast um heiminn til þess að valda óeirðum í kringum alþjóðlegar efnahagsráðstefnur og ámóta.
Það er eitthvað, sem vert er að hafa áhyggjur af. Ekkert er þessu fólki greinilegar kærar en að gerast píslarvottar. En það vill ekki borga sektir, beinlínis til þess að sitja inni, svo það geti skreytt sig með stolnum fjöðrum og sagst vera pólitískir fangar, sem auðvitað gerir lítið úr raunverulegum pólitískum föngum hvarvetna. Það fagnar refsivistinni, svo þá er rétt að spyrja sig hvaða refsing geti mögulega verið við hæfi. Það má víst ekki flengja það á beran bossann á torgum úti, þó slík niðurlæging væri líkast til best til betrunar þeirra fallin. En mér finnst að þá ætti réttvísin að krefjast annarar refsingar, auk fjársekta og varðhalds til vara. Til dæmis brottvísunar útlendinga úr landi og nokkurra ára banns við ferðalögum hingað, Schengen-banns við fólki utan þess og færslu á gátlista Schengen-kerfisins (SIS) fyrir alla. Ætli það væri ekki refsing, sem kæmi við kaunin á kónunum?
Mönnum kann að finnast það harkaleg viðbrögð, en þá ættu þeir að hafa hugfast að þetta eru nákvæmlega sömu aðferðir og notaðar eru gegn fótboltabullum í Evrópu. Hver er munurinn á þeim og Saving Iceland?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Opinberar flengingar á Ingólfstorgi væru ekki vitlausar ;)
Hjörtur J. Guðmundsson, 30.7.2007 kl. 21:56
Já, það mætti setja upp kagann þar á ný í samstarfi við Sögufélag. Síðan væri við hæfi að rassskella liðið með bleikum sykurlagði svo börnin híi örugglega á það. Ætli það fyndist harðari refsing?
Andrés Magnússon, 30.7.2007 kl. 22:11
Tja, Ann Coulter talaði eitt sinn fyrir því að þetta væri eina refsingin sem dygði á meðlimi glæpagengja í Bandaríkjunum. Það þætti bara svalt að vera settur í fengelsi í slíkum hópum en það væri kannski ekki eins svalt að hafa verið flengdur á almannafæri.
Hjörtur J. Guðmundsson, 30.7.2007 kl. 22:54
Í einum fréttatíma tala liðsmenn Saving Iceland um borgaralega óhlýðni, enda þjóni tilgangurinn meðalið. Heill þjóðar og framtíðar Íslands sé í húfi. Með því að tala um borgaralega óhlýðni eru þessir þokkapiltar búnir að viðurkenna glæpinn, enda þó þeir tali í næsta fréttatíma um að þeir séu pólitískir fangar. Svona rekst hvað á annað, í undarlegum málflutningi þessara samtaka. Liðsmaður þeirra, hjúkrunarfræðingurinn Siggi pönk, fékk við sig fínt viðtal í Kastljósinu í fyrri viku en svo segja þessir "aðgerðasinnar" að eðlilegt hefði verið að fulltrúi þeirra sæti í Kastljósinu sl. föstudagskvöld, og svaraði fyrir fréttir um að þau fengju greiðslur fyrir að vera handtekin af lögreglu. Í umræddu Kastljósi talaði Agnes Bragadóttir um "atvinnuauðnuleysingja" - og greinilegt er að það hefur eitthvað farið fyrir brjóstið á Saving Iceland. Skelfilega þolir þetta lið gagnrýnina illa!!
Sigurður Bogi Sævarsson (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 23:34
Hvaða heilvita manneskja vitnar blákalt í Ann Coulter?
Þessi lygatæfa sem er ekki húsum hæf fyrir sorakjaftinn sem upp úr henni vellur? Ég tel reyndar ekki rétt að hún þekki ekki mun á réttu og röngu, því þá hefði henni ekki tekist að velja hið ranga í 100% tilfella, enda væri slíkt líkindafræðilega ómögulegt.
Elías Halldór Ágústsson, 31.7.2007 kl. 10:24
Hvað er fólk að láta þetta fara svona rosalega í taugarnar á sér? Frá mínum bæjardyrum séð hefur þetta verið afar friðsamlegt og frekar aumt. Sé hægt að tala um glæpi þessa fólks þá eru þeir minniháttar og ekki þess eðlis að brotvísun af landi hvað þá að líkamlegar refsingar séu réttlætanlegar. Er ekki í lagi heima hjá ykkur?
Það hefur löngum verið talið mikilvægt í þessu landi að ein lög gildi í landinu og ekki held ég að þið vilduð búa í landi þar sem þið gætuð búið við að verað flengd eða vísað úr landi vegna þess að þið hefðuð tekið þátt í mómælum sem ekki hafði verið kynt til yfirvaldanna.
Ekki fyrir löngu kom upp á síðum vefsins hugmyndir um líkamlega refsingu gagnvart stráki sem einhverjir töldu hafa misþyrmt hundi. Ekki hefur landinn lært mikið!
Héðinn Björnsson (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 17:55
Elías Halldór:
Nú er það nú orðið bannað? Það er nú einu sinni svo að flestir eiga það sennilega til að segja eitthvað af viti, meira að segja kemur það sjálfsagt fyrir í þínu tilfelli líka ;)
Hjörtur J. Guðmundsson, 31.7.2007 kl. 21:33
Ég bara spyr: Hvar er Íslandsdeild Amnesty? Hér á landi er fjöldi pólitískra fanga og hið opinbera kemst upp með að brjóta alþjóðasáttmála, stefna samskiptum við vinveitt ríki í hættu og vera á mála hjá erlendum stórfyrirtækjum. Leggjum aðeins út af þessu.
Hvað kallar þú öldruð hjón sem þurfa aðstoðar við eftir harða lífsbaráttu. Einu úrræði hjá einni "auðugustu" þjóð heimsins, er að vista þau á stofnunum á sitt hvoru landshorninu. Er ekki brýn þörf á, einmitt Amnesty. Þetta eru bara pólitískir fangar.
Úr því minnst er á kagann, hvernig er með opinbera starfsmenn sem fremja tæknileg afglöp í starfi og hagnast fjárhagslega? Mér persónulega litist betur á kaghýðingu kl. 15:00 fyrsta sunnudag hvers mánaðar á Austurvelli heldur en uppreist æru byggða á flýtimeðferð misskynsamlegra gæslumanna nýríkra stuttbuxnastráka þegar uppreistarvaldið hefur gengið afsíðis um sinn.
Nei Andrés það er hrein skömm að því að jafn gamalreyndur fjölmiðlamaður og þú ert, skuli sí og æ falla í þá gryfju að mismuna fólki. Hvaða lög var þetta fólk að brjóta? Var afbrotið einungis það að þau kusu að vera á móti því að eyðileggja náttúruna.
Gáðu að því góði maður að lífið á vonandi eftir að halda áfram um sinn en einungis að því gefnu að mannkynið fari sér ekki að voða með heimskulegum uppátækjum eins og að styðja linnulaus dráp á hverju öðru vítt um veröldina sem geta ekki endað með öðru en því að einhver missir þolinmæðina og tekur í kjarnorkugikkinn. Hvað ætla stóriðjumenn að gera þá?
Þórbergur Torfason, 31.7.2007 kl. 21:38
Þórbergur:
Það er eitt að mótmæla einhverju en allt annað að haga mótmælum sínum þannig að þau valdi öðrum eignatjóni eða skerði réttindi þeirra að öðru leyti, s.s. ferðafrelsi. Það er ekkert að því að þetta fólk mótmæli, en það er hins vegar engan veginn ásættanlegt að það geri það með þeim hætti sem áður er minnzt á.
Hefði haldið að þetta væri frekar augljóst.
Hjörtur J. Guðmundsson, 1.8.2007 kl. 02:37
Nokkuð fyndið að heyra fólk tala um pólitíska fanga sem fólk sem hefur brotið lög og er þess vegna sett í fangelsi eða ferðafrelsi þeirra er takmarkað vegna rannsóknar máls. Það gerir lítið úr alvöru pólitískum föngum sem þurfa að þjást vegna skoðana sinna árum saman.
Daði Einarsson, 1.8.2007 kl. 07:57
Vel svaraði Hjörtur Elíasi Halldóri. Og það má Ann Coulter eiga, hversu margt vitlaust sem hún kann að hafa sagt um ævina (sem mun víst stórlega orðum aukið í munni vinstrimanna), að hér mæltist henni þó afar vel og athugandi að taka hér upp slíkar refsingar í viðvörunarskyni -- gæti sparað okkur heilmikið í fangelsisútgjöldum.
Takk fyrir þarfa grein, Andrés.
Jón Valur Jensson, 6.8.2007 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.