20.10.2007 | 02:40
Á ég að gæta bróður míns?
Mér var bent á það að í helgarblaði DV mætti finna klausu um undirritaðan í Sandkorni, sem sjá má hér til hliðar. Nú ber að horfa til þess að DV fjallar jafnan um stjórnmál af einstakri vanþekkingu, þannig að oft verður úr prýðilegt skemmtiefni fyrir áhugamenn um stjórnmál, en þessi klausa er svo grautarleg, að hún er ekki aðhlátursefni. Ekki einu sinni þegar rausið um talíbana Gísla Marteins Baldurssonar hefst og meintan klofning, sem óneitanlega hlýtur að skrifast á Björn Bjarnason".
Líkast til er það Sigurjón Magnús Egilsson, fyrrverandi ritstjóri á Blaðinu, sem þarna heldur á penna; að minnsta kosti er höfundur með Björn Bjarnason á heilanum og telur það mikilvægt að tilgreina að ég sé fyrrverandi blaðamaður á Blaðinu, líkt og það sé hápunktur ferils míns að hafa unnið með honum! En ég er sumsé blaðamaður á Viðskiptablaðinu.
En það er nú ekki aðalmálið, heldur hitt að höfundur segir mig hafa fallið í þá gryfju að fjalla ekki hlutlaust um uppákomur í borginni, en það rekur hann til bróðernis míns, enda eigi ég að hafa vandlega gætt hagsmuna Kjartans Magnússonar, bróður míns og borgarfulltrúa, í ræðu og riti.
Nú er skemmst frá því að segja, að ég hef alls engar fréttir skrifað af orrahríðinni á vettvangi borgarinnar. Á hinn bóginn hef ég skrifað talsvert um REI-málið í Viðskiptablaðið og á blogga mína, bæði á Moggabloggi og á Eyjunni, og jafnvel rætt þessi mál stuttlega í Kastljósi Ríkisútvarpsins. Allt hefur það hins vegar verið annað hvort undir nafni eða í þar til gerðum skoðanadálkum; sumt í nokkrum hálfkæringi annað í rammri alvöru. Þar hef ég ekki hikað við að benda á skálkana í Orkuveitunni, vandræði Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, mysumaðka Björns Inga Hrafnssonar og hvernig Svandís Svavarsdóttir virðist hafa selt sálu sína næsthæstbjóðandi. En á Kjartan bróður eða einhverja sérstaka hagsmuni hans í þessum málum öllum hef ég ekki minnst.
Að njóta eða gjalda bróðernis
Það kemur sjálfsagt engum á óvart nema hinum djúphyglu stjórnmálaskýrendum DV að skrif mín og málflutningur bera keim af lífsviðhorfum mínum, sem sumir segja að séu nokkuð til hægri við miðju. Öfugt við flesta blaða- og fréttamenn nú orðið hef ég aldrei dregið dul á stjórnmálaskoðanir mínar eða þá staðreynd, að ég er félagi í Sjálfstæðisflokknum. Ég fæst enda að mestum hluta við skoðanaskrif, þannig að það kemur hreint ekki að sök að hafa grundvallaðar skoðanir. Mér finnst fullkomlega ástæðulaust að gera mér upp hlutleysi, það er enginn hlutlaus nema hóran.
Ég veit ekki hvað sandpárari DV á við um að ég hafi gætt hagsmuna Kjartans bróður míns í ræðu og riti. Auðvitað legg ég allt hið besta til hans; ekki aðeins af því að hann er bróðir minn, heldur af því að mér finnst hann grandvar og réttsýnn maður, duglegur og fylginn sér, einmitt þeirrar gerðar, sem á að sitja í borgarstjórn.
Hvað mín margvíslegu skrif varðar hefur Kjartan þó til þessa aðeins goldið bróðernisins en ekki notið. Vegna þess að hann er bróðir minn hef ég aldrei kunnað við að skrifa staf um hann eða hans verk, eins og það er rík ástæða til þess að meta hvort tveggja. Ég veit líka að honum hafa ekki alltaf líkað öll mín skrif og stundum beinlínis haft af þeim ama, því ég get verið vígreifur á ritvellinum og þá álykta sumir sem svo að ég hljóti að vera að enduróma eitthvað frá honum og kenna honum svo um. Í sumum tilvikum hefur fólk kosið að misskilja það á þann veg. Þeir, sem þekkja okkur bræður báða, vita betur.
Ég á að gæta bróður míns, hvað sem bróðurþelinu á DV líður. Ég ætla nú samt að þessum línum rituðum að láta það vera að vera að úttala mig um hann í umfjöllun um stjórnmál. Það væri ekki aðeins kjánalegt að reyna eitthvað slíkt, heldur ósanngjarnt. Bæði gagnvart lesendum og honum.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góður pistill.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 20.10.2007 kl. 11:17
... nema hóran?
"Það kemur sjálfsagt engum á óvart — nema hinum djúphyglu stjórnmálaskýrendum DV — að skrif mín og málflutningur bera keim af lífsviðhorfum mínum, sem sumir segja að séu nokkuð til hægri við miðju. Öfugt við flesta blaða- og fréttamenn nú orðið hef ég aldrei dregið dul á stjórnmálaskoðanir mínar eða þá staðreynd, að ég er félagi í Sjálfstæðisflokknum. Ég fæst enda að mestum hluta við skoðanaskrif, þannig að það kemur hreint ekki að sök að hafa grundvallaðar skoðanir. Mér finnst fullkomlega ástæðulaust að gera mér upp hlutleysi, það er enginn hlutlaus nema hóran."
Nú þykir mér þú, Andrés, tala óþarflega óljóst. Meinarðu að þeir sem temja sér hlutleysi í blaða- og fréttamennsku, sem er raunar boðorðið og ritningargrein númer eitt, séu hórur? Og að þeir sem virða hlutleysið hafi ekki grundvallaðar skoðanir? Ef þetta er viðhorf þitt eiga sumir meira bágt en aðrir í þessari merku stétt okkar. Vonandi ertu ekki staddur á 1. apríl?
Herbert Guðmundsson, 20.10.2007 kl. 18:25
Nei, þú misskilur, Herbert. Það, sem ég á við, er að það er enginn hlutlaus, nema sá sem selur sig að staðaldri, oft á dag. Vegna þess að honum stendur hjartanlega á sama um allt og alla. Slíkt geðleysi, tómlæti og hirðuleysi er ekki gott vegarnesti í fjölmiðlum.
Annars hugsa ég að ég skrifi sér færslu út frá þessari athugasemd; þú sýnir smá biðlund, Herbert.Andrés Magnússon, 20.10.2007 kl. 23:57
Sæll Andrés. Þú gerir hlut minn óþarflega mikinn. Var í fríi. Hitt er annað að ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma skrifað nokkuð um þig. Man bara ekki eftir tilefni til þess.
Sigurjón M. Egilsson (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.