12.12.2006 | 13:04
Litlir karlar og stórir
Það var undursamlegt að horfa á viðtalsþáttinn með Milton Friedman í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi, sem Bogi Ágústsson stýrði ágætlega. Þessi endursýning frá 1984 var einkar gefandi fyrir frjálshyggjumann á miðjum aldri eins og mig, en einhverveginn hafði mér 19 ára síblönkum menntaskólanema tekist að öngla saman fyrir hádegisverðarfundinum, sem andmælendur Friedmans í sjónvarpssal kváðust ekki hafa efni á að sækja.
Friedman var ekki hávaxinn maður, en samt var með ólíkindum að sjá hvað hinir norrænu langintesar, Bakkabræðurnir Stefán Ólafsson, Birgir Björn Sigurjónsson og Ólafur Ragnar Grímsson, voru miklu smærri en hann. Nú, 22 árum síðar, voru skoðanir Friedmans jafnskýrar og lifandi og þá, en hinir vinstrisinnuðu viðmælendur hans voru eins og aftur úr allt annarri öld. Sem þeir vitaskuld voru. Og eru.
En þarna sátu þeir kotrosknir og drýgindalegir, krossleggjandi skankana í takt, og mótbárurnar svo fáfengilegar, einatt á misskilningi byggðar og svo illa fram settar, að aumingjahroll setti að manni. Ég veit ekki hvorum ég vorkenndi meira: þeim að skilja þessa heimild eftir sig eða Friedman að þurfa að ansa þessu rausi í klukkutíma og kortér.
Hitt er svo annað mál, að nú skilur maður betur hina furðulegu grein Stefáns Ólafssonar um Friedman, sem birt var í Lesbók Morgunblaðsins um liðna helgi. En gat Morgunblaðið virkilega ekki sýnt minningu Friedmans meiri sóma en að birta þessa síðbúnu hefnd Stefáns? Að ekki sé minnst á sjálfsvirðingu Lesbókarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.12.2006 kl. 04:32 | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heyr, heyr.
Snorri Bergz, 12.12.2006 kl. 14:09
Þetta er hárrétt hjá þér Andrés. Þetta viðtal er einhver merkasta heimild okkar íslendinga um vinstrivilluna í landinu, sem fyrir einhvern ótrúlegan aumingjaskap þjóðarinnar, rataði að lokum inn á Bessastaði.
Umræddar kappræður eru einhvert það mesta konfekt sem sjónvarpið hefur borið á borð fyrir hina skikkuðu styrkjendur sína á síðustu árum. Það á vel við í jólamánuði að bera slíkt á borð. Þessi þáttur ætti að verða fastur liður í jóladagatali barnanna um hver jól!
Stefán Einar Stefánsson (IP-tala skráð) 12.12.2006 kl. 21:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.