20.6.2008 | 12:09
Utanríkisráðherra er ekki vandanum vaxinn
Í athugasemd við fyrri færslu var imprað á því að tilgangur minn með því að skrifa um utanríkismál væri fyrst og fremst sá að taka Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til bæna. Því var ekki þannig farið þó vissulega væri ekki hjá því komist að gagnrýna framgöngu hennar í því máli. En athugasemdin vakti mig til umhugsunar um þetta liðlega ár, sem hún hefur setið í stóli utanríkis- og varnarmálaráðherra. Hvernig hefur hún eiginlega staðið sig?
Skemmst er frá því að segja að ráðherratíð hennar hefur verið samfellt hneyksli.
Um það er þó rétt að fjalla í lengra máli. Miklu lengra. Byrjum á því að rifja upp hvað stóð í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um utanríkis- og öryggismál. Það er ekki langt mál:
Mannréttindi, aukin þróunarsamvinna og áhersla á friðsamlega úrlausn deilumála verða nýir hornsteinar í íslenskri utanríkisstefnu. Ný ríkisstjórn harmar stríðsreksturinn í Írak og vill leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Írak og Miðausturlöndum, m.a. með þátttöku í mannúðar- og uppbyggingarstarfi. Íslendingar eiga að stefna að því að taka forystu í baráttunni gegn mengun hafsins og alþjóðlegu starfi til að bregðast við loftslagsbreytingum. Að öðru leyti byggist stefna ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum á þeim gildum sem legið hafa til grundvallar samvinnu vestrænna lýðræðisríkja, norrænu samstarfi og viðleitni þjóða heims til að auka frelsi í alþjóðlegum viðskiptum. Ríkisstjórnin mun fylgja markaðri stefnu í öryggis- og varnarmálum og koma á fót samráðsvettvangi stjórnmálaflokkanna um öryggismál. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að allar meiriháttar ákvarðanir um utanríkismál verði teknar í samráði við utanríkismálanefnd Alþingis.
Á ársafmæli ríkisstjórnarinnar um daginn hafði Geir H. Haarde, forsætisráðherra á orði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi að ríkisstjórnin hefði efnt um 80% af stefnumiðum stjórnarsáttmálans, en af því tilefni sögðu gárungarnir að þá gæti hún vonandi sagt af sér 27. ágúst ef áfram miðaði jafnvel. En hvernig hefur stefnumiðunum um alþjóðamálin verið fylgt eftir? Miðað við þessa stuttu málsgrein hér að ofan mætti ætla að það gæti ekki verið flókið mál. En það hefur greinilega vafist fyrir utanríkisráðherranum. Tökum það lið fyrir lið:
Mannréttindi, aukin þróunarsamvinna og áhersla á friðsamlega úrlausn deilumála verða nýir hornsteinar í íslenskri utanríkisstefnu.
Mannréttindi eru alls ekki lögð til grundvallar utanríkisstefnunni, eins og best sást í blóðbaðinu í Tíbet á dögunum. Þvert á móti lagði utanríkisráðherra lykkju á leið sína til þess að ítreka stuðning Íslands við stefnuna um eitt Kína og lagðist gegn þjóðaratkvæðagreiðslu á Taívan! Það er nú aldeilis virðing fyrir mannréttindum, lýðræði og friðsamlegri úrlausn deiluefna. Þar fyrir utan hafa ráðherrann og háttsettir embættismenn hennar verið einstaklega iðnir við að hitta erlenda ráðamenn vegna framboðsins til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, en stór hluti þeirra ræður ríkjum þar sem mannréttindaástandið er bágborið. Sumir raunar í ríkjum, þar sem ástandið er svívirðilegt. Á svoleiðis smotterí hefur ekki verið minnst.
Ráðherranum hefur raunar verið tíðrætt um hlutverk Íslands í friðarumleitunum og vísað til síns frábæra ferðalags til Ísraels og Palestínu í því samhengi. Út úr því kom vitaskuld ekkert, en fyrir skömmu skutu Tyrkir (keppinautar um öryggisráðssætið) okkur ref fyrir rass í þeim efnum með alvöru framlagi til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs.
Þróunarsamvinnan er svo enn í aftursætinu, en breytingar á þeim vettvangi snúast aðallega um það hvort hún eigi að vera í sérstofnun eða á kontór í ráðuneytinu. Jú, ráðherrann lagði fram mikið þróunarsamvinnufrumvarp í febrúar, en það komst ekki upp úr nefnd og afdrif þess óljós.
Ný ríkisstjórn harmar stríðsreksturinn í Írak og vill leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Írak og Miðausturlöndum, m.a. með þátttöku í mannúðar- og uppbyggingarstarfi.
Já, var það? Hvernig? Með því að kalla heim eina friðargæsluliðann? Við skulum ekki einu sinni minnast á fíflaganginn og falsið með lista hinna staðföstu þjóða, en hitt væri fróðlegt að vita, hvað felst í harmi ríkisstjórnarinnar.
Íslendingar eiga að stefna að því að taka forystu í baráttunni gegn mengun hafsins og alþjóðlegu starfi til að bregðast við loftslagsbreytingum.
Í þessum efnum hefur ráðherrann ekkert gert ef marka má fréttatilkynningalista ráðuneytisins. Nema menn vilji telja með þriggja ára verksamning við Búnaðarskólann á Hvanneyri um uppbyggingu alþjóðlegs landgræðsluskóla. Nær allt frumkvæði Íslands í þessum efnum má rekja annað í stjórnkerfinu, ekki síst til forseta lýðveldisins, en fráleitt er að ræða um forystu á því sviði.
Að öðru leyti byggist stefna ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum á þeim gildum sem legið hafa til grundvallar samvinnu vestrænna lýðræðisríkja, norrænu samstarfi og viðleitni þjóða heims til að auka frelsi í alþjóðlegum viðskiptum.
Svo sanngirni sé gætt hefur þetta sjálfsagt að miklu leyti verið efnt, en til þess að gæta sanngirni er líka fátt sem hefur kallað á sérstaka aðkomu ráðherrans að eilífðarverkefnum ráðuneytisins. Þó má nefna ónærgætni í samstarfi við bandamenn okkar í Afganistan og Írak, ókurteisi við utanríkisráðherra Bandaríkjanna á dögunum, vanhugsaða viðurkenningu á sjálfstæði Kosovo, náin samskipti við útlagaríkið Íran þvert á samþykktir alþjóðasamfélagsins og sitthvað fleira. Þar ræðir samt fremur um grunnhyggni en grundvallarstefnubreytingar (ef fyrrnefnt rof í samstarfi við hin Norðurlöndin er undan skilið). En jafnvel þó þar væri allt í sóma væri það starf bara business as usual og ekki beinlínis tilefni til þess að útdeila fálkaorðum. Hvað þá stórriddarakrossum.
Hins vegar má vel spyrja að því hvort yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar um Evrópumálin og gjaldmiðilinn séu til þess fallin að greiða fyrir hagfelldum alþjóðaviðskiptum. Í vetur jókst Evrópuumræðan talsvert og eftir því var tekið að utanríkisráðherra skipti eilítið um gír í henni. Til þess að komast upp úr tæknilegu argaþrasi hagaði hún máli sínu þannig að Evrópumálin væru ekki síst spurning um eðli og erindi Íslands í heiminum, hvort Ísland tilheyrði Evrópu eða ekki. Það er ekkert að því að setja málin fram með þeim hætti, en hversu skynsamlegt er það hjá utanríkisráðherra Íslands að skipa landinu þannig í sveit með löndum Austur-Evrópu, sem vilja fyrir alla muni samsama sig Evrópu og fjarlægja sig aldalöngum og kæfandi faðmlögum rússneska bjarnarins? Íslendingar eru hreint ekki í þeirri stöðu og hafa ekkert að sanna um evrópskt eðli sitt. Málflutningur ráðherrans vakti hins vegar efasemdir um það. Nýjasta frumkvæðið sérstakt auglýsingainnlegg í júlí-ágúst hefti Foreign Affairs undirstrikar þetta enn frekar. Það eru nær einvörðungu óburðug nýhagkerfi á borð við Serbíu, Jemen, Sádí-Arabíu, Turk & Caicos, Macau, Azerbajdzhan, Máretaníu, Kúrdistan og Tanzaníu, sem kaupa sér umfjöllun með þessum hætti. Er ástæða til þess að skipa Íslandi á bekk með þeim?
Enn einkennilegri og hættulegri var þó árás utanríkisráðherra á íslensku krónuna í viðtali á Morgunvakt Rásar 2 hinn 23. apríl. Þar sagði ráðherrann að íslenska krónan væri efnahagslífinu ekki vörn til framtíðar, hún væri frekar hættuvaldur. Bætti hún því svo við að Íslendingar hefðu tveggja kosta völ: evru eða krónu. Líkast til hefur enginn gengið jafnlangt í að tala niður gjaldmiðilinn undanfarin ár, sem vitaskuld er stóralvarlegt athæfi. Ekki síst hjá öðrum tveggja forystumanna ríkisstjórnar, en í flestum öðrum löndum heims hefðu orð af þessu tagi valdið tafarlausu gengishruni á mörkuðum. Það gerðist til allrar hamingju ekki, en hvaða áhrif ætli þau orð hafi haft á erlenda spákaupmenn? Kostnaðurinn kann að vera að koma í ljós núna.
Ríkisstjórnin mun fylgja markaðri stefnu í öryggis- og varnarmálum og koma á fót samráðsvettvangi stjórnmálaflokkanna um öryggismál.
Þetta hefur nú aldeilis ekki gengið eftir. Þvert á móti hefur verið hringlað þvílíkt í þeim efnum að undrum sætir og hvert hneykslið eltir annað. Það er búið að leggja niður Ratsjárstofnun (eftir að ráðherrann sagði forstjóranum upp og sagði svo ósatt um málsatvik) og stofna nýja Varnarmálastofnun, samkvæmt nýjum varnarmálalögum, sem voru samþykkt áður en nýtt hættumat liggur fyrir, þrátt fyrir að ráðherrann hefði sjálfur kynnt Alþingi að hættumatið ætti að legga til grundvallar nýrri stefnu í varnarmálum: Undirstaða haldgóðrar varnarstefnu Íslands til framtíðar er að fram fari vandað og faglegt hættumat fyrir Ísland sem byggt sé á bestu þekkingu. Fyrir nú utan hitt að varnir landsins eru enn fullkomlega ótryggðar, hvað sem líður þeim erlendu flugsveitum, sem hingað koma endrum og sinnum sér til skemmtunar og heilsubótar.
Hamrað var á því að hin nýja stofnun ætti alls ekki að koma nálægt borgaralegum verkefnum og var það ein helsta röksemdin fyrir henni og lögunum. Það vakti því verulega athygli þegar ráðherrann handvaldi nýjan forstjóra þessarar stofnunar úr löggæslunni, manneskju sem enga þekkingu hefur á varnarmálum þrátt fyrir að 8. grein laganna kveði sérstaklega á um það. Þarna var því bæði vikið frá stefnu ríkisstjórnarinnar, markaðri stefnu, og hinum nýsamþykktu lögum, sem varnarmálaráðherrann lagði sjálfur fram!
Það var enda ekki einu sinni búið að stofna Varnarmálastofnun þegar Ellisif Tinna Víðisdóttir, nýskipaður forstjóri hennar, kom fram í viðtali á Morgunvakt á rás 1 Ríkisútvarpsins hinn 21. maí og fór að útskýra það af miklum móð að hlutverk stofnunarinnar væri að mestu leyti borgaralegt, gæti tekið til löggæsluverkefna og hvaðeina! Með ólíkindum er að löglærðum forstjóranum hafi ekki verið ljós eigin lagaheimildir og skorður á þessari stofnun, sem sagt er að hún hafi komið svo mikið nálægt við að móta. Það er raunar efni í sérfærslu.
Og samráðsvettvangur stjórnmálaflokkanna um öryggismál? Hann er óstofnaður ennþá, enda sjálfsagt eitthvað enn sem varnarmálaráðherrann vill véla um í friði frá tilsjón Alþingis.Og þá verður hann til lítils eins og stjórnarandstaðan hefur keppst við að benda á, án þess að vera virt viðlits, hvað þá meir. Í vor var raunar komið eilítið annað hljóð í strokkinn hjá ráðherranum, sem útskýrði dugleysið með því að samráðsvettvangurinn ætti að vera inni á gafli hjá óstofnuðu rannsóknarsetri um varnir og öryggi. Með öðrum orðum á engin tilsjón að vera af hálfu Alþingis, heldur mega þingmenn ræða hver við annan hjá einhverju nýju háskólabattaríi, sem kannski verður stofnað einhverntíman. Eitthvað með álíka vigt og Alþjóðamálastofnun HÍ, Smáríkjasetrið eða Evrópufræðasetrið? Þetta er náttúrlega argasta móðgun við þingið og lýðræðislega stjórnarhætti.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að allar meiriháttar ákvarðanir um utanríkismál verði teknar í samráði við utanríkismálanefnd Alþingis.
Tja, hvar værum við stödd ef ríkisstjórnin legði ekkert sérstaklega upp úr því? Það kom nú aldeilis í ljós í apríl hvernig utanríkis- og varnarmálaráðherrann virðir þá lögbundnu skyldu sína. Nær væri að tala um svívirðu í því samhengi. Það að utanríkisráðherra beri lagaskylda til samráðs við nefndina um meiriháttar ákvarðanir myndi undir venjulegum kringumstæðum þýða að tæpast að þyrfti að tiltaka það í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ekki fremur en að þar þurfi að standa að ráðherrar hyggist kappkosta að fara að landslögum. Í þessu tilviki var þó ekki vanþörf á.
Þegar utanríkis- og varnarmálaráðherrann fór með einkaþotu á Búkarest-fund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins ásamt forsætisráðherra lágu margvísleg mjög mikilvæg mál fyrir fundinum. Ráðherrann hafði ekki fyrir því að kynna neitt af því fyrir utanríkismálanefnd Alþingis. Nefndarmenn höfðu hins vegar pata af því af lestri erlendra fjölmiðla og var óskað eftir fundi með utanríkisráðherra. Hún synjaði þeirri ósk! Hafði eitthvað miklu mikilvægara við tíma sinn að gera.
Þetta er fullkomlega óskiljanleg framkoma. Ekki síst í ljósi þess hvað var svo samþykkt á fundinum. Í Búkarestar-yfirlýsingunni var fastaráði bandalagsins falið að leggja fram tillögur fyrir næsta leiðtogafund um hvernig megi veita öllum löndum og lýðum NATO eldflaugavarnir. Á þessa ráðagerð var fallist af íslenskum stjórnvöldum án þess að það hafi í nokkru verið rætt hér á landi, en ef af verður er afar sennilegt að koma þurfi fyrir gagnflaugum hér á landi og hugsanlega nýrri ratsjárstöð. Nú hafa engar slíkar fyrirætlanir verið samþykktar enn, en í stuðningi Íslands við yfirlýsinguna felst eigi að síður nokkur skuldbinding. Ég fagna því svo sem, en hitt er óþolandi að svo veigamikið mál skuli hafa hlotið samþykki Íslands fullkomlega umræðulaust.
Til þess að bíta höfuðið af skömminni var varnarmálaráðherrann spurður út í þetta í Kastljósi Ríkissjónvarpsins eftir að heim var komið. Ráðherrann eyddi málinu og hélt því fram eða virtist halda að til stæði að gagnflaugakerfi Bandaríkjamanna í Tékklandi og Póllandi ætti að verja varnarsvæði NATO alls, sem er fjarri lagi. Annað hvort fór Ingibjörg Sólrún með fals eða hitt sem er engu skárra hún vissi ekki hvað hún var að undirrita. Var 37. grein Búkarestar-yfirlýsingarinnar þó merkilega afdráttarlaus og olli t.d. talsverðri fjölmiðlaumfjöllun í Noregi.
Í ljósi alls þessa, auk hins er nefnt var í fyrri færslu um Norðurlandasamstarf, blasir við að utanríkis- og varnarmálaráðherrann hefur varla gert tilraun til þess að standa við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um málaflokk sinn. Til þess að bæta gráu ofan á svart virðist Ingibjörg Sólrún einfaldlega ekki vandanum vaxinn. Hvert sem litið er blasir við klúður eða vanefndir, vanþekking eða fals. Varnarmálin, sem hún sóttist svo ákaft eftir, eru orðinn einn grautur óljósra markmiða og enn torkennilegri framkvæmdar, jafnvel lögbrota og valdþurrðar. Að ekki sé minnst á pólitískar ráðningar og aðrar verri. Hin nýja utanríkisstefna tja, hvar er hún? Er ekki nær að tala um fullkomið stefnuleysi?
Staðreyndin er sú, að Solla hefur siglt og villst inn á allt önnur mið en áður hefur verið gert, blandar saman innri og ytri vörnum eftir þörfum eða hugdettum og utanríkisstefnan er orðin eitthvert óskiljanlegt moð. Og ekki aðeins að smekk þess hauks, sem hér skrifar; ekki síður þegar litið er til þeirra hugsjóna, sem Samfylkingin hefur sett fram í þeim efnum, hvort heldur ræðir um kosningastefnu eða samþykkt landsfundar.
Og hvað má þá segja um stóra verkefnið, sem hefur forgang á öll önnur og allt annað: framboðið í öryggisráðið? Er ekki hverjum manni ljóst að möguleikar Íslands í því kjöri hafa að engu orðið á vakt Ingibjargar Sólrúnar? Ekki verður því þó um kennt, að ekki hafi verið nógu til þess kostað. Áætlaður kostnaður utanríkisráðuneytisins eru 12 milljarðar á þessu ári. Milljarður á mánuði! Hverjar ætli líkurnar séu á því að ráðuneytið haldi sig innan þeirrar áætlunar?
Ég hef haft rækilegar efasemdir um þetta ríkisstjórnarsamstarf frá upphafi og þær hafa lítt dalað. Ekki gagnvart krötunum, þeir eru ágætir fyrir sinn hatt, þó mig greini á við þá um margt. En Kvennalistinn er jafnliðónýtur í ríkisstjórn og hann var í stjórnarandstöðu.
Þegar litið er til þessa fyrsta árs Ingibjargar Sólrúnar í stóli utanríkis- og varnarmálaráðherra má ljóst vera að hún hefur engan áhuga á að framfylgja stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, dugleysi hennar stendur landinu fyrir þrifum og dugnaðurinn er því til óþurftar. Þegar kemur að samskiptum við umheiminn vill hún ekki segja þrjótunum til syndanna, en aðrar yfirlýsingar hafa reynst þjóðinni til skaða. Til hvers er hún þá?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Bloggfærslur 20. júní 2008
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar