21.11.2006 | 18:40
Hriktir í Bifröst
Brestur er kominn í regnbogasamfélagið á Bifröst, litlu minni en ef Múspellssynir riðu þar. En svo eru auðvitað spaugilegar hliðar málsins. Félagslífið á Bifröst er jafnan skemmtilegt og um daginn var haldin þar spurningakeppni, en spyrillinn var víst enginn annar en margumræddur Runólfur Ágústsson, nýfráfarinn rektor, en hann samdi jafnframt spurningarnar sjálfur. Spurning sex mun hafa hljóðað eitthvað á þessa leið: ABBA er hljómsveit sem allir eiga að þekkja. Hin alþekkta beitta sænska samfélagsrýni hjómsveitarinnar kom þeim á sínum tíma í fremstu röð. Eitt þeirra bestu laga þeirra hefst á orðunum Everybody screamed. Hvert er framhald þeirra orða sem einnig er heiti lagsins? Eins og allir vel lesnir menn vita er svarið: when I kissed the teacher. Sannast enn, að raunveruleikinn er lygilegri en nokkur skáldskapur. Ef sagan er sönn, en hún er eiginlega of góð til þess að það skipti öllu máli.
Annars getur þetta sérkennilega Bifrastarmál haft víðtæk áhrif, því nú eru tveir háskólar landsins rektorslausir, Bifröst og Háskólinn í Reykjavík, sem Guðfinna S. Bjarnadóttir er á förum frá. Í báðum tilvikum má finna pólitíska vinkla á. Bryndís Hlöðversdóttir, sem nú starfar sem staðgengill rektors, elur vonir um að vera ráðin í rektorsstól, en mikill kurr er vegna þess í háskólasamfélaginu. Ráðning hennar sem forseta lagadeildar þótti sérkennileg á sínum tíma, enda var hún ráðin án auglýsingar og sjálfsagt engin dæmi um það í alvöruháskólum, að í slíkt virðingarembætti sé fenginn lögfræðingur án framhaldsmenntunar, fræðastarfs, starfa í praxís eða gráðu utan hins almenna prófs.
En auðvitað var ráðning Bryndísar ekki algerlega út í loftið þó eftir sætu akademískar efasemdir. Bryndís sat á þingi fyrir Samfylkinguna þegar hún var ráðin og varamaður hennar hét Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem er formaður Samfylkingarinnar og sárvantaði einmitt þingsæti. Runólfur, þáverandi rektor, er vitaskuld kunnur stuðningsmaður hennar í Samfylkingunni, en forseti lagadeildarinnar sem vék úr sæti fyrir Bryndísi var Ingibjörg Þorsteinsdóttir, vinkona nöfnu sinnar og dyggur liðsmaður hins fræga framtíðarhóps hennar, sem nú heyrir blessunarlega fortíðinni til. En nú reynir á það hvert Bifrastarlénið fer og kann þá enn að höggvast úr baklandi flokksformannsins, sem veiktist mjög í umliðnum prófkjörum Samfylkingarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.11.2006 kl. 03:39 | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.