22.11.2006 | 09:56
Röng frétt Ríkisútvarpsins
Ástandið í Líbanon er afar flókið og svo hefur lengi verið. Þjóðin ef það er rétta orðið er margklofin eftir sið, uppruna og stjórnmálaafstöðu í þeirri röð. En það er nú samt alveg hægt að átta sig á grundvallaratriðum málsins án teljandi vandræða. Þess vegna varð ég steinhissa í morgun þegar ég heyrði Hildi Bjarnadóttur lesa aðalfréttina í Ríkisútvarpinu kl. níu. Líbanon og ástandið þar virðist henni fullkomlega framandi. Til þess að glöggva hlustendur á stöðu mála kom eftirfarandi kafli í fréttinni:
Mikil ólga er í Líbanon og valdabaráttan sögð hörð milli þeirra flokka sem fylgja Sýrlandsstjórn að málum og þeirra sem eru henni andvígir. Hezbollar eru í forystu andstöðunnar við Sýrlendinga og staðráðnir að fella ríkisstjórnina sem nýtur stuðnings Bandaríkjanna.
Þessi víðtæka vanþekking tekur þó ekki aðeins til ástandsins suður við Miðjarðarhafsbotn, heldur til enskrar tungu. Fréttin er nefnilega að mestu leyti byggð á fréttaskeyti Reuters og ofangreind málsgrein á að vera þýðing á eftirfarandi:
The killing will heighten tensions between the anti-Syrian government and the pro-Damascus opposition led by Hezbollah, the powerful Shi'ite Muslim guerrilla group determined to topple what it sees as a pro-U.S. cabinet.
Þetta er nú hreint ekki sami hluturinn og fréttin því röng í undirstöðuatriðum.
Hryðjuverkasamtökin Hezballah voru stofnuð af Írönum á sínum tíma til þess að útbreiða hina íslömsku byltingu shíta og eru leppar hennar, eins og best sást á dögunum þegar þau hófu hernað gegn Ísrael til þess að draga athygli leiðtogafundar G8 frá kjarnorkuvæðingu Írana með skelfilegum afleiðingum. Innan Líbanon hentar það þeim hins vegar að draga taum Sýrlendinga, enda fengu Hezballah að grafa um sig óáreitt meðan á hernámi Sýrlendinga stóð og hagsmunir þeirra fara fullkomlega saman, líbönsku þjóðinni til bölvunar.
Það er einnig rétt að halda því til haga að ríkisstjórn Líbanons hvað sem annars má um hana segja nýtur viðurkenningar og stuðnings alþjóðasamfélagsins. En af hverju telur Hezballah (eins og RÚV slær síðan föstu með smámisskilningi) að ríkisstjórnin fylgi Bandaríkjunum að málum? Jú, af því að Hezballah hefur neytt hluta ríkisstjórnarinnar til afsagnar og vinir þeirra í Damaskus reyndu að drepa tvo ráðherra til viðbótar í gær. Að vísu tókst aðeins að drepa annan, en ella hefði ríkisstjórnin sjálfkrafa farið frá samkvæmt stjórnarskrá. Þeir sem eftir eru í ríkisstjórninni eru ekki fortakslausir leppar Sýrlendinga og þar af leiðandi augljóslega á snærum Stóra Satans. Eða svo segir RÚV.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.11.2006 kl. 03:35 | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.