Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
30.3.2009 | 12:43
Hvaða „við“ eigum lífeyriskerfið?
Ég sé að minn kæri Bjarni Harðarson er ánægður með framtak gotterísfurstans Helga Vilhjálmssonar í Góu gagnvart lífeyrissjóðunum. Segir hann hreyfa mikilsverðu máli, sem sé brask og hálaunastefna lífeyrissjóðakerfisins. Það má vel vera, enda er Helgi sjálfsagt hvorki ókunnur braski né háum launum.
Mér leikur hins vegar hugur á að vita annað: Í hvaða lífeyrissjóði er Helgi og af hverju reynir hann ekki fyrst að betrumbæta hann áður en hann gengst fyrir því að Jóhanna Sigurðardóttir taki allan lífeyri landsmanna undir sinn náðarfaðm? Og það undir kjörorðunum Við eigum lífeyrissjóðina!
Ég á einhver lífeyrisréttindi, en mér dettur ekki í hug að fyrir vikið eigi ég kröfu á aðra lífeyrissjóði líkt og Helgi lætur. Enn síður að með því að setja inn nafn og kennitölu á undirskriftasöfnun Helga á netinu geti ég eða hann eða Jóhanna í nafni þjóðarinnar slegið eign sinni á lífeyriskerfið og látið það haga sér að þörfum mínum, hans eða Jóhönnu.
Þetta er kannski einkennandi fyrir þjóðfélagsumræðuna heima þessi misserin, í upplausninni og umrótinu í kjölfar áfallsins stíga fram allir landsins lukkuriddarar til þess að koma á framfæri sérstökum áhugamálum sínum, gamalkunnum að vísu, en eiga að sögn sérstakt erindi nú. Ég hugsa að þeir keisarar muni flestir reynast klæðaminni en þær dansmeyjar, sem nú liggur mest á að uppræta. Væntanlega til þess að slá skjaldborg um heimilin og koma hjólum atvinnulífsins í gang, svo vitnað sé til vinsælustu flatneskjunnar.
27.3.2009 | 15:09
Bjarna Ben til forystu
Nú stendur landsfundur Sjálfstæðisflokksins yfir og ég er illa fjarri góðu gamni. Ég skráði mig til setu á honum skömmu upp úr áramótum, þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir boðaði til hans. Svo breyttist allt, stjórnin féll, Geir H. Haarde veiktist, fundinum var frestað og allt hitt. Þar á meðal breyttist það, að ég fluttist til Englands um nokkurra mánaða skeið.
Svo ég missi af landsfundinum. Ég sýti það nokkuð, því ég hafði hlakkað til þess að gera út um Evrópumálin þar eins og að var stefnt. Mín skoðun er sú að Ísland eigi að vera sjálfstætt ríki og leyfa Evrópu að fljóta að sínum feigðarósi. Ég segi mínum ensku vinum hér í Cotswolds að mér finnist að Bretar eigi að gera hið sama og geti máske fengið aðild að EES. Þeirri hugmynd er hvarvetna vel tekið, en Evrópusambandið nýtur lítils fylgis eða aðdáunar hér.
Heima munu flokkssystkin mín líka velja flokknum nýja forystu, en ég hefði líka viljað koma að því vali. Það skiptir verulega miklu máli að þar takist vel til. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að endurnýja hugmyndalegt erindi sitt og það verður ekki létt verk, þó hann hafi vissulega á sjálfstæðisstefnunni að byggja. Meira um það síðar.
Hin nýja forysta þarf því að búa yfir hugmyndaauðgi og vel grundvölluðum stjórnmálaskoðunum, því hennar hlutverk verða ekki bara politics as usual, eins og það er nefnt hér á Englandi. Við blasir að stjórnmálin þurfa að helgast af hugsjónum en ekki hagsmunum. Að auki verður að teljast líklegt að sjálfstæðismenn verði í stjórnarandstöðu næstu misserin, sem verður hinni nýju forystu nokkur eldskírn og kallar á óumdeilda leiðtogahæfileika, bæði til þess að halda eigin liði saman og berja á vinstriflokkunum (sem nú þykjast allt í einu hafa höndlað sannleikann), en umfram allt til þess að sannfæra þjóðina um að Sjálfstæðisflokkurinn sé traustsins verður. Um það virðast margir hafa efasemdir nú, en það kann að breytast fyrr en varir. Ástandið kann að virðast hábölvað nú, en ekki verður það skárra eftir að rauðgræna stjórnin verður búin að vera við völd í aðra 80 daga til. Hvað þá lengur.
Kristján Þór Júlíusson er snjall stjórnmálamaður og kann sitt fag, en ég held ekki að hann sé rétti maðurinn til þess að taka við Sjálfstæðisflokknum, þétta raðirnar og endurnýja erindi hans. Hans pólitísku hæfileikar liggja einfaldlega á öðrum sviðum.
Bjarni Benediktsson þykir mér hins vegar einsýnt að sé best til þess fallinn að taka við forystu Sjálfstæðisflokksins á þessum erfiðu tímum. Hann hefur þá pólitísku dýpt, sem til þarf, hefur ríka leiðtogahæfileika til að bera og er bæði vígfimur og varkár. Ég sé að sumir vilja meina að hann hafi fæðst með silfurskeið í munni, en ég myndi nú heldur benda á að honum eru stjórnmálin í blóð borin. Það held ég að sé ekki verra þessa dagana. Þvert á móti. Við stöndum frammi fyrir alvarlegum vanda, þá er um að gera að fá alvörugefna menn til forystu.
Samkvæmt skoðanakönnunum vilja nær 60% sjálfstæðismanna að Bjarni verði formaður, en um 36% styðja Kristján Þór. Mér kæmi ekki á óvart þó atkvæðatölur á landsfundi féllu á þann veg. Til allra vina minna og flokksfélaga á landsfundi sendi ég góðar kveðjur og skora á þá að kjósa Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins. Það liggur mikið við.
Þjóðin fái að skera úr um ESB-aðild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.3.2009 | 21:25
Skoðanahannanir og fals í fjölmiðlum
Mér fannst hún soldið merkileg fréttin um að Guðlaugur Þór Þórðarson hafi ekki einu sinni náð meirihlutafylgi í eigin kosningakerfi, þessari rómuðustu kosningamaskínu landsins. Samkvæmt stuðningsmönnum Gulla eru þeir aðeins að fá jákvæð svör frá 45% þeirra, sem hringt er í. Ekki finnst mér það nú til þess að senda út fréttatilkynningar um.
Í dag átti ég leið í kosningamiðstöð Illuga Gunnarssonar úti á Fiskislóð, en ég styð hann í 1. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Í ljósi fréttarinnar um þessa könnun úthringivers Guðlaugs Þórs spurðist ég fyrir um hvernig svör Illugamenn væru að fá um stuðning í 1. sætið í sínum úthringingum. Það er skemmst frá því að segja að samkvæmt þeirra tölfræði ætla 96% viðmælenda þeirra að kjósa Illuga í fyrsta sætið, 2,7% vilja Geir Hallgrímsson en tveir nefndu Gunnlaug Þór Þórðarson, sem mér vitanlega er ekki í framboði.
Grínlaust þá skil ég ekkert í að fjölmiðlar skuli birta svona frétt. Sporðrennir Moggi hvaða þvaðri sem er og endurbirtir gagnrýnislaust? Hér er ljóslega ekki um skoðanakönnun að ræða, heldur einhverja statistík frá símsölufólki, sem engin leið er að staðfesta til eða frá, en er snikkuð til og látin líta út eins og frétt um eitthvað allt annað. Sumsé fals. Eyjan hafði þó fyrir því að birta viðbrögð Illuga og nefndi hina sérkennilegu aðferðafræði í fyrirsögn. Vísir birti hins vegar villandi frétt um að stuðningsmenn Guðlaugs Þórs hafi látið framkvæma könnun líkt og þar hafi hlutlaust könnunarfyrirtæki komið að, en bæði þar og á mbl.is var nefnt svona í framhjáhlaupi að könnunin hafi verið gerð fyrir stuðningsmenn Guðlaugs Þórs af úthringihóp á vegum framboðs Guðlaugs Þórs. Sumsé af símaveri hans, sem er miðverkið í kosningamaskínu hans!
Stuðningsmenn Guðlaugs segja hann hafa forystu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar