16.2.2007 | 23:39
Meira um skoðanakannanir
Ég las það í Fréttablaðinu frá síðasta miðvikudegi að fjórir af hverjum fimm, sem svöruðu könnuðum blaðsins, ætla að fara utan í sumar. Þetta er sama úrtakið og Samfylkingin uppskar 27,9% fylgi hjá og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, núverandi formaður Samfylkingarinnar, naut fyllsta trausts 12,1% svarenda. En 80,3% ætla úr landi. Er samhengi þarna á milli?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju Andrés!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.2.2007 kl. 23:53
Nei, það var næsta færsla á undan.
Andrés Magnússon, 17.2.2007 kl. 00:12
Það vantar allan humor í hann Ægi Hann þarf að læra að slaka aðeins á strákurinn. Nema hann sé svona stífur af áhyggjum yfir að drottningin hans hún ISG verði ekki forsætisráðherra
Guðmundur H. Bragason, 17.2.2007 kl. 01:13
Þó Ingibjörg Sólrún sé bitur, reið, sár og á móti öllu í fjölmiðlaviðtölum og ræðum (svo mjög að vinstri-grænir eru hátið í samanburði) þá er óþarfi að allir í flokknum api það eftir henni. Nema um sé að ræða einhverja skipun að ofan um að fylgja fordæmi foringjans? ;)
Hjörtur J. Guðmundsson, 17.2.2007 kl. 12:41
Við sem þekkjum Ingibjörgu Sólrúnu og vitum hversu hæfileikarík hún er, rökvís og heiðarleg ,höfum ákveðna samúð með þeim ,sem sífellt eru að reyna að' skaða mannorð hennar á pólutískum vettvangi.Oftast er það ótti og minnimáttarkennd,sem veldur svona rógi.Við honum kann ég eitt gott ráð,það er að vera heiðarlegur í umfjöllun um aðra.
Kristján Pétursson, 17.2.2007 kl. 17:59
Rógi? Ég átta mig ekki á því hvað Kristján er að fara. Ég hef vissulega ekki dregið af mér við að gagnrýna núverandi formann Samfylkingarinnar, en hún hefur byggst á því sem mér finnst Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafa til unnið. Ástæðurnar hef ég tíundað í allöngu máli, þannig að röksemdafærslan ætti ekki að vefjast fyrir mönnum, hvort sem þeir fallast svo á hana eða ekki. En rógur er það ekki, enda ligg ég ekki á gagnrýnininni, hálfkveðnar vísur kveð ég sjaldan og engum dylst hver heldur á penna.
Í stjórnmálum verða menn að geta tekið gagnrýni á orð sín, gerðir og árangur. Í eðli sínu hlýtur sú gagnrýni að bindast persónum og leikendum, ekki síst þegar í hlut á fólk, sem leggur sérstaka áherslu á leiðtogastjórnmál. Þegar leiðtogahæfileikarnir eru síðan bara svona og svona getur það tæpast kvartað þó að sé fundið eða gaman hent að gorgeirnum og gæfuleysinu. Það á líka við um aðdáendahjörðina.
Andrés Magnússon, 17.2.2007 kl. 20:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.