Leita í fréttum mbl.is

Hneykslið heldur áfram

Það ber vissulega vott um að það sé að rofa til í kollinum á þessum herramönnum, að nú eigi allir starfsmenn Orkuveitunnar að fá að njóta peningaprentvélarinnar í kjallara kastalans á Bæjarhálsi 1. En það ber vott um slægð og sjálfsbjargarviðleitni, ekki réttsýni og siðferðisvitund. Eins og þeir greina sjálfir frá:

Ljóst sé að umræða undanfarinna daga hafi ekki jákvæð áhrif á REI og það góða starf sem þar sé unnið. Þar hafi meginþungi umræðunnar beinst að afmörkuðum þætti sem sé sala á hlutabréfum til starfsmanna. Viðkomandi starfsmenn séu sammála því að það séu hagsmunir þeirra og fyrirtækisins að friður ríki um starfsemi þess og sýna því niðurstöðunni fullan skilning.

Þetta er sem sagt almannatengslaaðgerð, ekkert annað.

Á hitt má fallast, að það er miður að meginþungi umræðunnar skuli hafa beinst að þessum afmarkaða þætti hennar. Við getum þá kannski tekið að ræða veigameiri þætti málsins; af nógu er að taka.

Ég vil þó staldra við þennan afmarkaða þátt aðeins lengur. Gefum okkur eitt augnablik að það sé alveg frábært mál að almenningsfyrirtæki noti einokunartekjur sínar til þess að breyta sér í vogunarsjóð. Í þá stöðu komst fyrirtækið með því að hafa borgarbúa og borgarsjóð í ábyrgðum um leið og tekjurnar komu einnig úr vasa borgarbúa. Þessir sömu borgarbúar eru jafnframt eigendur fyrirtækisins.

Skýrt hefur verið frá því að stefnt sé að skráningu hins nýja sameinaða Reykjavík Energy Invest á hlutabréfamarkað, sem hugsanlega gefur vísbendingu um hversu lengi atvinnumennirnir í áhættufjárfestingum hyggjast staldra við. Ef helmingurinn af framtíðarsýn forystumanna fyrirtækjanna reynist á rökum reistur er ekki ólíklegt að verðmæti þess aukist næsta hratt, þó auðvitað sé ekkert í hendi um það. Svo ég spyr:

Af hverju í ósköpunum er eigendum fyrirtækisins
ekki gefinn kaupréttur í fyrirtækinu?

Það voru þeir, sem byggðu Orkuveituna og fyrirrennara hennar upp, og það eru þeir, sem hafa lagt fram megnið af verðmætunum, sem hið nýja fyrirtæki er reist á. Um það höfðu þeir ekkert val, hvorki um uppbyggingu fyrirtækisins né hvort þeir keyptu þjónustu hennar.

Það er alveg ljóst að fyrirtækið hefur okrað á eigendum sínum og viðskiptamönnum fyrst það á alla þessa fjármuni aflögu og hefur það þó einbeitt sér að því að gereyða peningum í vitleysu, bruðl og gæluverkefni mörg undanfarin ár. Þá var hafður uppi alls kyns fyrirsláttur og fals um það hvers vegna fjárþörf fyrirtækisins væri svo rúm. Eins voru arðgreiðslur til Reykjavíkurborgar oft býsna ríflegar, sem vitaskuld var ekkert annað en dulin skattheimta.

Allt þetta báru borgarbúar, borguðu og brostu. Nú skilst manni að auðgast megi á verðmætum, sem þrátt fyrir allt hafi byggst upp hjá fyrirtækinu, víðar en hjá hinum einokuðu viðskiptamönnum og eigendum fyrirtækisins. Og þess vegna eru nú allar þessar vélar, að græða á því pening, þó svo að stjórnendum borgarinnar og fyrirtækisins hafi ekki viljað spyrja kjörna fulltrúa eigendanna, hvað þá eigendurna sjálfa. Þeir vildu ekki einu sinni umræðu um það, hvað þá meir, sem vekur ákveðnar spurningar um tilganginn og meðölin.

En hvað verður um arðinn ef allt gengur vel? Fá eigendurnir hann? Nei, en það er talað um að þeir muni njóta hans. Já, já, eins og þeir hafa notið arðsins af Orkuveitunni til þessa. Þessa óljósa arðs af einokunni á þeim sjálfum. Og öll vitum við hvað borgin fer vel með fjármuni almennings. Næstum því jafnvel og Orkuveitan. Það verður aðeins enn ein tegund skattheimtu, en menn skyldu ekki ímynda sér eitt augnablik að það verði til þess að útsvarið lækki.

Ég bíð spenntur eftir að borgarstjóri eða stjórnarformaður fyrirtækisins sýni það frumkvæði að bjóða eigendunum kaupréttartilboð, fyrst nú liggur fyrir viðurkenning þeirra á því að einhver tiltekinn hópur eigi það skilið. Getur nokkur hópur verið betur að því komin en hinn óspurði eigendahópur, sem jafnframt hefur unað eiginfjársöfnun úr öllu hófi og það á eigin kostnað? Það hlyti enda að styrkja fyrirtækið mjög ef það yrði raunverulegt almenningshlutafélag á fyrsta degi skráningar á markaði, með dreift eignarhald,
áþreifanlega tiltrú almennings og svo framvegis.

Hvernig væri að ræða það mál sérstaklega og til hliðar við aðra anga málsins? Án þess að draga af okkur við að brjóta þá til mergjar. 


mbl.is Samþykkt að endurskoða sölu á hlutabréfum í REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tek heilshugar undir orð Andrésar um að gera borgarbúum og þar með eigendum Orkuveitunnar kleift að kaupa hlutabréf í þessu "nýja óskabarni þjóðarinnar"  Það yrði sjálfsagt stór hópur sem væri reiðubúinn til þess. 

Orkuveitan þyrfti þá ekki að leggja eins mikið af mörkum og gæti ef til vill lækkað gjöldin til neytenda. Það eru meðmæli með fjárfestingunni að Bjarni sé þar einn stærsti fjárfestirinn.

Einn eigenda Orkuveitunnar (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 19:48

2 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Snýst öll þessi umræða þá bara um að þú sért öfundsjúkur?

Það er búið að tala um alls kyns spillingu og sjálftöku (á meðan þeir sem er verið að fjalla um varðandi sjálftöku eru Haukur Leosson og Björn Ingi sem ákváðu að þeir sjálfir fengju ekki að kaupa hlut - það var nú öll sjálftakan), það er búið að tala um þennan fund sem á að vera ólöglegur o.s.frv. o.s.frv. 

En snýst þetta bara á endanum um öfund Andrés?  Ég held það nefnilega.  Ég held að verði almenningi leyft að kaupa bréf í fyrirtækinu þá skyndilega hætti allar þessar ásakanir og allir segi að allt sem þeir segja í dag að sé ekki í lagi verði í lagi.  Ótrúleg hræsni en nákvæmlega það sem þessi umræða öll gengur út á!

Sigurður Viktor Úlfarsson, 7.10.2007 kl. 02:21

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

"Byltingin étur börnin sín." Þetta hefur frjálshyggjumönnum þótt mikill vísdómur og ekki sparað að halda á lofti.

Nú fer moðhausum á borð við mig að detta í hug hvort óbeisluð frjálshyggjan sé farin að finna blóðlykt af börnunum sínum?

Að trúa á kennisetningar er auðvitað heimska. Einu gildir hvort um ræðir kommúnisma eða frjálshyggju. Hæfileg blanda af hvorutveggja er vandfundin en lífsnauðsynleg hverju samfélagi.

Árni Gunnarsson, 7.10.2007 kl. 10:13

4 Smámynd: Andrés Magnússon

Ég hef allnokkrar athugasemdir að færa við athugasemd Sigurðar  Viktors Úlfarssonar, svo miklar að ég hef sett inn sérfærslu um þær.

..................... 

Að byltingin éti börnin sín hefur nú ekki verið sett fram af minni frjálshyggjumönnum en Danton, Robespierre, Ernst Röhm og Trotskíj! Í því samhengi er kannski nær að minna á orð kandíska rithöfundarins Mordecai Richler (Duddy Kravitz, Barney's Version o.fl.): „Byltingin étur börnin sín, kapítalisminn fjölgar sér.“

En athugasemd Árna er ekki úr lausu lofti gripin. Frelsinu fylgir ábyrgð og á meðan ég fagna auknu frjálsræði í athafnalífinu, grósku þess og áræði, er ég ekki frá því að menn hafi ekki sýnt nægilega kostgæfni við að setja niður sér sér lög og sið, sem verða að fylgja ef vel á að farnast. Við þekkjum einnig hvernig dómstólar eru ragir við að beita þeim lögum, sem menn töldu þó gilda.

Andrés Magnússon, 7.10.2007 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrés Magnússon
Andrés Magnússon
blaðamaður á Englandi ritar hér fréttir, fróðleik og hugleiðingar, sem ekki rata á prent.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband