30.3.2009 | 12:43
Hvaða „við“ eigum lífeyriskerfið?
Ég sé að minn kæri Bjarni Harðarson er ánægður með framtak gotterísfurstans Helga Vilhjálmssonar í Góu gagnvart lífeyrissjóðunum. Segir hann hreyfa mikilsverðu máli, sem sé brask og hálaunastefna lífeyrissjóðakerfisins. Það má vel vera, enda er Helgi sjálfsagt hvorki ókunnur braski né háum launum.
Mér leikur hins vegar hugur á að vita annað: Í hvaða lífeyrissjóði er Helgi og af hverju reynir hann ekki fyrst að betrumbæta hann áður en hann gengst fyrir því að Jóhanna Sigurðardóttir taki allan lífeyri landsmanna undir sinn náðarfaðm? Og það undir kjörorðunum Við eigum lífeyrissjóðina!
Ég á einhver lífeyrisréttindi, en mér dettur ekki í hug að fyrir vikið eigi ég kröfu á aðra lífeyrissjóði líkt og Helgi lætur. Enn síður að með því að setja inn nafn og kennitölu á undirskriftasöfnun Helga á netinu geti ég eða hann eða Jóhanna í nafni þjóðarinnar slegið eign sinni á lífeyriskerfið og látið það haga sér að þörfum mínum, hans eða Jóhönnu.
Þetta er kannski einkennandi fyrir þjóðfélagsumræðuna heima þessi misserin, í upplausninni og umrótinu í kjölfar áfallsins stíga fram allir landsins lukkuriddarar til þess að koma á framfæri sérstökum áhugamálum sínum, gamalkunnum að vísu, en eiga að sögn sérstakt erindi nú. Ég hugsa að þeir keisarar muni flestir reynast klæðaminni en þær dansmeyjar, sem nú liggur mest á að uppræta. Væntanlega til þess að slá skjaldborg um heimilin og koma hjólum atvinnulífsins í gang, svo vitnað sé til vinsælustu flatneskjunnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér þætti ákaflega gott að fá "mína lífeyrissjóðspeninga" nú þegar inná mína bankabók. Ég get sjálfur séð um að ávaxta þá jákvætt eða neikvætt og þarf ekki hjálp "ofurlaunamanna" til þess. Þeir taka alltaf sinn skerf sama hvort ég fæ mínus eða plús og það sama á við um stjórnir í sjóðunum. Ég vil standa og falla með þeirri ávöxtun sem mér tækist að koma í gegn.
Kannski fá þá börnin einhvern smáarf þar.
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 16:42
Ég er sammála Páli. Ég er skíthræddur um að stjórnmálamenn fari með einhverjum hætti að seilast í mína lífeyrispeninga eða stýra því hvernig sjóðirnir ávaxta sig.
Finnst reyndar líka að á þessum tímum ætti að bjóða fólki að lækka iðgjöld í lífeyrissjóði tímabundið og fá mótframlagið greitt úr. Þannig gætu margir aukið ráðstöfunartekjur sínar um 5% eða meira. Ég er samt mjög hlyntur lífeyrissparnaði almennt.
Þorsteinn Sverrisson, 30.3.2009 kl. 21:53
Ef það væri nú stærsta áhyggjuefnið okkar...
Helgi Jóhann Hauksson, 31.3.2009 kl. 02:44
Andrés:
Ég er svo sammála þér að það hálfa væri nóg.
Ég er svo gjörsamlega búinn að fá nóg af þeirri grunnu og heimskulegu umræðu sem tröllríður þjóðfélaginu að ég legg til að gömlu kjörorði stjórnmálaflokks, sem ég þekki ágætlega til, verði breytt:
Guðbjörn Guðbjörnsson, 31.3.2009 kl. 07:11
Mæl þú manna heilastur kæri Andrés.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 16.4.2009 kl. 09:08
Já Andrés minn - ég er viss um að fólkið sem þarf núna að þola tugaprósenta rýrnun ævisparnaðarins er stolt af hæfni lífeyrissjóðanna til ávöxtunar. Fínt kerfi!
Hugi (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 15:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.