Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
29.6.2008 | 02:37
Rafmagnað rokk
Mér er sagt að þetta hafi verið frábærir tónleikar, en ég fór nú ekki. Finnst enda eilítið spes að koma á 200.000 watta tónleika til þess að undirstrika andstöðu við orkuútflutning. Settist þess vegna frekar upp í þýskan benzíndrifinn blæjubíl (undursamlegan Audi A3 Cabriolet) og reykspólaði til Póra og Heiðu í Laxnesi, þar sem verið var að fagna 40 ára afmæli hestaleigunnar. Stelpurnar mínar komu með og skipuðu mér án afláts að hækka í Ramones á leiðinni inn í dal. Þangað komnar dönsuðu þær svo frá sér allt vit í hlöðunni við íslenskt kántrí.
Í laugardagsmogganum var annars ágætt viðtal Kolbrúnar Bergþórsdóttur við Björk, þar sem hún gerði stuttlega grein fyrir afstöðu sinni í þessum málum. Það var gott hjá henni. Með fylgdi afbragðsportrett eftir Bernhard Ingimundarson, sem sjá má hluta af hér að ofan.
Myndin minnti mig á portrett af öðrum söngvara, David Lee Roth, sem prýddi sólóplötuna Eat 'em and Smile, frumraun hans eftir að leiðir skildu með honum og Eddie Van Halen hér um árið. Eins og sjá má er meiri villimaður í Dave, en fremur kabuki í Björk. Eins og vera ber.
Af þessu tilefni hlustaði ég á Dave aftur eftir langt hlé og þetta var bara skolli góð plata hjá honum. Það sakaði ekki að hann var með einvalalið með sér; Steve Vai á gítar, Billy Sheehan á bassa og Gregg Bisonette á trumbum. Bætti þess vegna við laginu Yankee Rose í tónlistarspilarann efst til hægri.
Óður til náttúrunnar í Laugardal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2008 | 19:17
Stöðvum landflóttann!
Það eru vitaskuld vondar fréttir að Baugsmenn kjósi að flytja einhver félaga sinna úr landi, en fyrir vikið munu vafalaust einhverjir missa vinnuna, hið opinbera verður af tekjum o.s.frv. Ekki síst er það blóðugt þegar haft er í huga að upphaflega voru fyrirtæki Baugs að mestu leyti fjármögnuð af íslenskum launþegum í gegnum lífeyrissjóðina
Á hinn bóginn er vitaskuld langt síðan Baugsmenn hófu flutning ýmissar starfsemi sinnar til annara landa, fyrst og fremst Bretlands, en einnig til Færeyja, Danmerkur og Bandaríkjanna, að ekki sé minnst á feitu jómfrúna, þ.e.a.s. Virgin Gorda á Bresku Jómfrúreyjum.
Fyrst ekki var betri fréttir að finna í Morgunblaði morgundagsins, fór ég því að fletta gömlum Moggum til þess að finna betri fréttir úr fortíð. Rakst ég þá ekki á þessa ljómandi skemmtilegu auglýsingu úr félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins frá 1980, sem gefur að líta að ofan. Þá stóð yfir mikil fundaherferð á vegum Sambands ungra sjálfstæðismanna undir kjörorðunum Stöðvum landflóttann, en þá var venju fremur þröngt í búi hér heima á skeri. Sem sjá má lét Hreinn Loftsson ekki sitt eftir liggja og vildi helst færa í tal skattamál og réttindi einstaklingsins. Eins og kunnugt er hafa þau málefni ekki verið honum síður hugleikin að undanförnu en þá í fyrndinni.
Líkt og áður hefur verið bent á hér á síðunni er Hreinn stjórnarmeðlimur í Baugi Group, fyrrverandi stjórnarformaður, lögmaður félagsins og einn helsti consiglieri hins núverandi starfandi stjórnarformanns, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Væri ekki ráð að hann tæki upp þráðinn á ný og legði sitt af mörkum til að stöðva landflóttann?
Mun flytja einhver félög Baugs til annarra landa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2008 | 00:38
Þjóðarsáttin, taka 2
Þeir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra handsala þjóðarsáttina að tjaldabaki, aðfaranótt 2. febrúar 1990. Að baki þeim er dr. Ólafur R. Grímsson stjórnmálafræðiprófessor, sem vottaði sáttina fyrir hönd þjóðarinnar.
Úr Göfuglyndi á ögurstundu, 23. kafla bókarinnar Íslandssaga 3b, 20. öldin Sagan öll,
eftir dr. Ólaf Ragnar Grímsson. (Útg. Global Center; Garðabær, 2008.)
27.6.2008 | 11:02
Lærdómar sögunnar
Síðastliðinn sunnudag varð Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir því að verða áttræður og af því tilefni var boðað til málþings um foringjann. Hann vann sér til frægðar að verða þrisvar forsætisráðherra og nafn hans mun lengi uppi fyrir að segja það skýrt í stefnuræðu sinni árið 1988 að eitt meginatriðið í stefnu ríkisstjórnar hans væri að hverfa frá almennt viðurkenndum, vestrænum aðferðum við stjórn efnahagsmála. Hér á landi giltu einhver önnur efnahagslögmál.
Afleiðingar hagfræðikenninga Steingríms þekkja menn mætavel. Undir hans stjórn komst verðbólgan í 37% árið 1985, en með óvinsælum aðgerðum tókst honum þó að þoka henni niður í 20-30%. Ekki leið þó á löngu þar til í stefndi að ríkisstjórnin missti öll tök á hagstjórninni. Árið 1989 fundust til allrar hamingju menn utan hennar, utan stjórnmálanna raunar, sem þóttust eygja leið út út ógöngunum og tóku frumkvæðið í þeim efnum, vegna þess að ríkisstjórnin var vonlaus.
Þeir sköpuðu þjóðarsátt.
Til þessa hefur ekki mikið verið um það deilt hvernig þjóðarsáttin varð til og hvernig úr henni vannst. Auðvitað kom ríkisstjórnin að þjóðarsáttinni. Ýmsar aðgerðir henni tengdar voru á forræði hins opinbera. En hún áttu þar ekkert frumkvæði, heldur stóð frammi fyrir orðnum hlut og lét til leiðast. Þeir, sem muna þessa tíma eða nenna að rýna í samtímaheimildir, vita hins vegar að ríkisstjórnin var hreint ekkert áhugasöm um þessa tilraun og því má jafnvel halda fram að stjórnin hafi nánast klúðrað henni. Allt fór það þó vel að lokum.
Þess vegna kom mörgum á óvart að á fyrrnefndu málþingi til heiðurs Steingrími steig herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á stokk og lýsti þessum þætti lýðveldissögunnar með nokkuð öðrum hætti en menn hafa átt að venjast. Aðalstef ræðu forsetans (fyrir utan almennt hól um feril afmælisbarnsins), var sú frumlega tilgáta að þjóðarsáttin hafi verið smíð þáverandi ríkisstjórnar, en vegna göfuglyndis og stjórnvisku Steingríms hafi hann leyft aðilum vinnumarkaðarins að eiga heiðurinn. Þessi tilgáta er hrein firra. Það var öllum ljóst hvernig í þessum málum lá þá, sagnfræðingar hafa um þau fjallað síðan og einhverjir stjórnmálafræðingar víst líka. Guðmundur Magnússon sagnfræðingur, sem ritaði bókina Frá kreppu til þjóðarsáttar (2004), greinir frá því á bloggi sínu að hann hafi í rannsóknarskyni rætt við stjórnmálamenn, embættismenn og forystumenn á vinnumarkaði á tíma þjóðarsáttar:
Niðurstaðan var afdráttarlaus og kom ekki óvart. Allt frumkvæði að samningunum, gerð þeirra og eftirfylgni var verk stéttarsamtakanna. Ríkisstjórnin var í hlutverki þiggjanda í því ferli öllu.
Nú er tilgangur forsetans með þessum tilbrigðum við söguna svo sem öllum ljós.
Herra Ólafur Ragnar var fjármálaráðherra í þessari sömu ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar þegar þjóðarsáttarsamningarnir voru gerðir í febrúar 1990. Hann var því aðeins öðrum þræði að skjalla Steingrím Hermannsson; fyrst og fremst var hann að baða sjálfan sig í dýrðarljóma þjóðarsáttarinnar. Fullkomlega óverðskuldað. Og þó.
Gleymum ekki því að herra Ólafur Ragnar var sjálfsagt óvinsælasti fjármálaráðherra Íslandssögunnar. Sem slíkur átti hann drjúgan þátt í því með Steingrími að í þvílíkt óefni var komið, að aðilar vinnumarkaðarins sáu sig knúna til þess að fella áratugalangar deilur, taka höndum saman og gera það, sem ríkisstjórnin var fullkomlega vanmáttug til. En við hyllum ekki brennuvarginn fyrir lykilhlutverk hans í hetjudáð slökkviliðsins.
Við þetta er staldrað vegna þess að við þurfum að gæta þess að sagan sé ekki afbökuð og fölsuð. Þó ekki væri nema til þess að mönnum sé unnt af læra af henni, því vanræki menn það eru þeir dæmdir til þess að endurtaka hana. Einkum þó mistökin. En það er líka eitthvað einstaklega aumt við það að reyna að eigna sér heiður með þessum hætti og um leið láta eins og hinir raunverulegu frumkvöðlar hafi fyrir náð Steingríms leyfst að eiga heiðurinn. Hvað er forsetinn að gefa í skyn um þá?
Hvaða lærdóma getum við dregið af þjóðarsáttinni? Ég átti þess kost að ræða við Einar Odd Kristjánsson á liðnu sumri, skömmu áður en hann varð bráðkvaddur. Þá þegar voru nýjar blikur á lofti í efnahagsmálunum, niðurskurður fiskveiðiheimilda blasti við og alþjóðlegir lánsfjármarkaðir farnir að nötra. Hann lagði ofuráherslu á að verðbólgunni mætti ekki hleypa af stað aftur. Nánast allt væri betra. En ef hún nú léti kræla á sér, þá mætti alls ekki gera illt verra með því að hefja á ný víxldans kaupgjalds og verðlags. Á sá lærdómur ekki erindi í dag?
Einar Oddur var ekki stærilátur maður og hann lét sér í léttu rúmi liggja þó einhverjir væru að reyna að eigna sér þjóðarsáttina eftir á. Þeim líður betur að muna þetta svona, sagði hann. Máske, en þar með er ekki sagt að við eigum að líða þeim það. Þó ekki væri nema til þess að geta dregið rétta lærdóma af réttri sögu.
......................
Grein þessi birtist upphaflega í Viðskiptablaðinu 26. VI. 2008.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.6.2008 | 12:09
Utanríkisráðherra er ekki vandanum vaxinn
Í athugasemd við fyrri færslu var imprað á því að tilgangur minn með því að skrifa um utanríkismál væri fyrst og fremst sá að taka Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til bæna. Því var ekki þannig farið þó vissulega væri ekki hjá því komist að gagnrýna framgöngu hennar í því máli. En athugasemdin vakti mig til umhugsunar um þetta liðlega ár, sem hún hefur setið í stóli utanríkis- og varnarmálaráðherra. Hvernig hefur hún eiginlega staðið sig?
Skemmst er frá því að segja að ráðherratíð hennar hefur verið samfellt hneyksli.
Um það er þó rétt að fjalla í lengra máli. Miklu lengra. Byrjum á því að rifja upp hvað stóð í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um utanríkis- og öryggismál. Það er ekki langt mál:
Mannréttindi, aukin þróunarsamvinna og áhersla á friðsamlega úrlausn deilumála verða nýir hornsteinar í íslenskri utanríkisstefnu. Ný ríkisstjórn harmar stríðsreksturinn í Írak og vill leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Írak og Miðausturlöndum, m.a. með þátttöku í mannúðar- og uppbyggingarstarfi. Íslendingar eiga að stefna að því að taka forystu í baráttunni gegn mengun hafsins og alþjóðlegu starfi til að bregðast við loftslagsbreytingum. Að öðru leyti byggist stefna ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum á þeim gildum sem legið hafa til grundvallar samvinnu vestrænna lýðræðisríkja, norrænu samstarfi og viðleitni þjóða heims til að auka frelsi í alþjóðlegum viðskiptum. Ríkisstjórnin mun fylgja markaðri stefnu í öryggis- og varnarmálum og koma á fót samráðsvettvangi stjórnmálaflokkanna um öryggismál. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að allar meiriháttar ákvarðanir um utanríkismál verði teknar í samráði við utanríkismálanefnd Alþingis.
Á ársafmæli ríkisstjórnarinnar um daginn hafði Geir H. Haarde, forsætisráðherra á orði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi að ríkisstjórnin hefði efnt um 80% af stefnumiðum stjórnarsáttmálans, en af því tilefni sögðu gárungarnir að þá gæti hún vonandi sagt af sér 27. ágúst ef áfram miðaði jafnvel. En hvernig hefur stefnumiðunum um alþjóðamálin verið fylgt eftir? Miðað við þessa stuttu málsgrein hér að ofan mætti ætla að það gæti ekki verið flókið mál. En það hefur greinilega vafist fyrir utanríkisráðherranum. Tökum það lið fyrir lið:
Mannréttindi, aukin þróunarsamvinna og áhersla á friðsamlega úrlausn deilumála verða nýir hornsteinar í íslenskri utanríkisstefnu.
Mannréttindi eru alls ekki lögð til grundvallar utanríkisstefnunni, eins og best sást í blóðbaðinu í Tíbet á dögunum. Þvert á móti lagði utanríkisráðherra lykkju á leið sína til þess að ítreka stuðning Íslands við stefnuna um eitt Kína og lagðist gegn þjóðaratkvæðagreiðslu á Taívan! Það er nú aldeilis virðing fyrir mannréttindum, lýðræði og friðsamlegri úrlausn deiluefna. Þar fyrir utan hafa ráðherrann og háttsettir embættismenn hennar verið einstaklega iðnir við að hitta erlenda ráðamenn vegna framboðsins til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, en stór hluti þeirra ræður ríkjum þar sem mannréttindaástandið er bágborið. Sumir raunar í ríkjum, þar sem ástandið er svívirðilegt. Á svoleiðis smotterí hefur ekki verið minnst.
Ráðherranum hefur raunar verið tíðrætt um hlutverk Íslands í friðarumleitunum og vísað til síns frábæra ferðalags til Ísraels og Palestínu í því samhengi. Út úr því kom vitaskuld ekkert, en fyrir skömmu skutu Tyrkir (keppinautar um öryggisráðssætið) okkur ref fyrir rass í þeim efnum með alvöru framlagi til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs.
Þróunarsamvinnan er svo enn í aftursætinu, en breytingar á þeim vettvangi snúast aðallega um það hvort hún eigi að vera í sérstofnun eða á kontór í ráðuneytinu. Jú, ráðherrann lagði fram mikið þróunarsamvinnufrumvarp í febrúar, en það komst ekki upp úr nefnd og afdrif þess óljós.
Ný ríkisstjórn harmar stríðsreksturinn í Írak og vill leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Írak og Miðausturlöndum, m.a. með þátttöku í mannúðar- og uppbyggingarstarfi.
Já, var það? Hvernig? Með því að kalla heim eina friðargæsluliðann? Við skulum ekki einu sinni minnast á fíflaganginn og falsið með lista hinna staðföstu þjóða, en hitt væri fróðlegt að vita, hvað felst í harmi ríkisstjórnarinnar.
Íslendingar eiga að stefna að því að taka forystu í baráttunni gegn mengun hafsins og alþjóðlegu starfi til að bregðast við loftslagsbreytingum.
Í þessum efnum hefur ráðherrann ekkert gert ef marka má fréttatilkynningalista ráðuneytisins. Nema menn vilji telja með þriggja ára verksamning við Búnaðarskólann á Hvanneyri um uppbyggingu alþjóðlegs landgræðsluskóla. Nær allt frumkvæði Íslands í þessum efnum má rekja annað í stjórnkerfinu, ekki síst til forseta lýðveldisins, en fráleitt er að ræða um forystu á því sviði.
Að öðru leyti byggist stefna ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum á þeim gildum sem legið hafa til grundvallar samvinnu vestrænna lýðræðisríkja, norrænu samstarfi og viðleitni þjóða heims til að auka frelsi í alþjóðlegum viðskiptum.
Svo sanngirni sé gætt hefur þetta sjálfsagt að miklu leyti verið efnt, en til þess að gæta sanngirni er líka fátt sem hefur kallað á sérstaka aðkomu ráðherrans að eilífðarverkefnum ráðuneytisins. Þó má nefna ónærgætni í samstarfi við bandamenn okkar í Afganistan og Írak, ókurteisi við utanríkisráðherra Bandaríkjanna á dögunum, vanhugsaða viðurkenningu á sjálfstæði Kosovo, náin samskipti við útlagaríkið Íran þvert á samþykktir alþjóðasamfélagsins og sitthvað fleira. Þar ræðir samt fremur um grunnhyggni en grundvallarstefnubreytingar (ef fyrrnefnt rof í samstarfi við hin Norðurlöndin er undan skilið). En jafnvel þó þar væri allt í sóma væri það starf bara business as usual og ekki beinlínis tilefni til þess að útdeila fálkaorðum. Hvað þá stórriddarakrossum.
Hins vegar má vel spyrja að því hvort yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar um Evrópumálin og gjaldmiðilinn séu til þess fallin að greiða fyrir hagfelldum alþjóðaviðskiptum. Í vetur jókst Evrópuumræðan talsvert og eftir því var tekið að utanríkisráðherra skipti eilítið um gír í henni. Til þess að komast upp úr tæknilegu argaþrasi hagaði hún máli sínu þannig að Evrópumálin væru ekki síst spurning um eðli og erindi Íslands í heiminum, hvort Ísland tilheyrði Evrópu eða ekki. Það er ekkert að því að setja málin fram með þeim hætti, en hversu skynsamlegt er það hjá utanríkisráðherra Íslands að skipa landinu þannig í sveit með löndum Austur-Evrópu, sem vilja fyrir alla muni samsama sig Evrópu og fjarlægja sig aldalöngum og kæfandi faðmlögum rússneska bjarnarins? Íslendingar eru hreint ekki í þeirri stöðu og hafa ekkert að sanna um evrópskt eðli sitt. Málflutningur ráðherrans vakti hins vegar efasemdir um það. Nýjasta frumkvæðið sérstakt auglýsingainnlegg í júlí-ágúst hefti Foreign Affairs undirstrikar þetta enn frekar. Það eru nær einvörðungu óburðug nýhagkerfi á borð við Serbíu, Jemen, Sádí-Arabíu, Turk & Caicos, Macau, Azerbajdzhan, Máretaníu, Kúrdistan og Tanzaníu, sem kaupa sér umfjöllun með þessum hætti. Er ástæða til þess að skipa Íslandi á bekk með þeim?
Enn einkennilegri og hættulegri var þó árás utanríkisráðherra á íslensku krónuna í viðtali á Morgunvakt Rásar 2 hinn 23. apríl. Þar sagði ráðherrann að íslenska krónan væri efnahagslífinu ekki vörn til framtíðar, hún væri frekar hættuvaldur. Bætti hún því svo við að Íslendingar hefðu tveggja kosta völ: evru eða krónu. Líkast til hefur enginn gengið jafnlangt í að tala niður gjaldmiðilinn undanfarin ár, sem vitaskuld er stóralvarlegt athæfi. Ekki síst hjá öðrum tveggja forystumanna ríkisstjórnar, en í flestum öðrum löndum heims hefðu orð af þessu tagi valdið tafarlausu gengishruni á mörkuðum. Það gerðist til allrar hamingju ekki, en hvaða áhrif ætli þau orð hafi haft á erlenda spákaupmenn? Kostnaðurinn kann að vera að koma í ljós núna.
Ríkisstjórnin mun fylgja markaðri stefnu í öryggis- og varnarmálum og koma á fót samráðsvettvangi stjórnmálaflokkanna um öryggismál.
Þetta hefur nú aldeilis ekki gengið eftir. Þvert á móti hefur verið hringlað þvílíkt í þeim efnum að undrum sætir og hvert hneykslið eltir annað. Það er búið að leggja niður Ratsjárstofnun (eftir að ráðherrann sagði forstjóranum upp og sagði svo ósatt um málsatvik) og stofna nýja Varnarmálastofnun, samkvæmt nýjum varnarmálalögum, sem voru samþykkt áður en nýtt hættumat liggur fyrir, þrátt fyrir að ráðherrann hefði sjálfur kynnt Alþingi að hættumatið ætti að legga til grundvallar nýrri stefnu í varnarmálum: Undirstaða haldgóðrar varnarstefnu Íslands til framtíðar er að fram fari vandað og faglegt hættumat fyrir Ísland sem byggt sé á bestu þekkingu. Fyrir nú utan hitt að varnir landsins eru enn fullkomlega ótryggðar, hvað sem líður þeim erlendu flugsveitum, sem hingað koma endrum og sinnum sér til skemmtunar og heilsubótar.
Hamrað var á því að hin nýja stofnun ætti alls ekki að koma nálægt borgaralegum verkefnum og var það ein helsta röksemdin fyrir henni og lögunum. Það vakti því verulega athygli þegar ráðherrann handvaldi nýjan forstjóra þessarar stofnunar úr löggæslunni, manneskju sem enga þekkingu hefur á varnarmálum þrátt fyrir að 8. grein laganna kveði sérstaklega á um það. Þarna var því bæði vikið frá stefnu ríkisstjórnarinnar, markaðri stefnu, og hinum nýsamþykktu lögum, sem varnarmálaráðherrann lagði sjálfur fram!
Það var enda ekki einu sinni búið að stofna Varnarmálastofnun þegar Ellisif Tinna Víðisdóttir, nýskipaður forstjóri hennar, kom fram í viðtali á Morgunvakt á rás 1 Ríkisútvarpsins hinn 21. maí og fór að útskýra það af miklum móð að hlutverk stofnunarinnar væri að mestu leyti borgaralegt, gæti tekið til löggæsluverkefna og hvaðeina! Með ólíkindum er að löglærðum forstjóranum hafi ekki verið ljós eigin lagaheimildir og skorður á þessari stofnun, sem sagt er að hún hafi komið svo mikið nálægt við að móta. Það er raunar efni í sérfærslu.
Og samráðsvettvangur stjórnmálaflokkanna um öryggismál? Hann er óstofnaður ennþá, enda sjálfsagt eitthvað enn sem varnarmálaráðherrann vill véla um í friði frá tilsjón Alþingis.Og þá verður hann til lítils eins og stjórnarandstaðan hefur keppst við að benda á, án þess að vera virt viðlits, hvað þá meir. Í vor var raunar komið eilítið annað hljóð í strokkinn hjá ráðherranum, sem útskýrði dugleysið með því að samráðsvettvangurinn ætti að vera inni á gafli hjá óstofnuðu rannsóknarsetri um varnir og öryggi. Með öðrum orðum á engin tilsjón að vera af hálfu Alþingis, heldur mega þingmenn ræða hver við annan hjá einhverju nýju háskólabattaríi, sem kannski verður stofnað einhverntíman. Eitthvað með álíka vigt og Alþjóðamálastofnun HÍ, Smáríkjasetrið eða Evrópufræðasetrið? Þetta er náttúrlega argasta móðgun við þingið og lýðræðislega stjórnarhætti.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að allar meiriháttar ákvarðanir um utanríkismál verði teknar í samráði við utanríkismálanefnd Alþingis.
Tja, hvar værum við stödd ef ríkisstjórnin legði ekkert sérstaklega upp úr því? Það kom nú aldeilis í ljós í apríl hvernig utanríkis- og varnarmálaráðherrann virðir þá lögbundnu skyldu sína. Nær væri að tala um svívirðu í því samhengi. Það að utanríkisráðherra beri lagaskylda til samráðs við nefndina um meiriháttar ákvarðanir myndi undir venjulegum kringumstæðum þýða að tæpast að þyrfti að tiltaka það í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ekki fremur en að þar þurfi að standa að ráðherrar hyggist kappkosta að fara að landslögum. Í þessu tilviki var þó ekki vanþörf á.
Þegar utanríkis- og varnarmálaráðherrann fór með einkaþotu á Búkarest-fund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins ásamt forsætisráðherra lágu margvísleg mjög mikilvæg mál fyrir fundinum. Ráðherrann hafði ekki fyrir því að kynna neitt af því fyrir utanríkismálanefnd Alþingis. Nefndarmenn höfðu hins vegar pata af því af lestri erlendra fjölmiðla og var óskað eftir fundi með utanríkisráðherra. Hún synjaði þeirri ósk! Hafði eitthvað miklu mikilvægara við tíma sinn að gera.
Þetta er fullkomlega óskiljanleg framkoma. Ekki síst í ljósi þess hvað var svo samþykkt á fundinum. Í Búkarestar-yfirlýsingunni var fastaráði bandalagsins falið að leggja fram tillögur fyrir næsta leiðtogafund um hvernig megi veita öllum löndum og lýðum NATO eldflaugavarnir. Á þessa ráðagerð var fallist af íslenskum stjórnvöldum án þess að það hafi í nokkru verið rætt hér á landi, en ef af verður er afar sennilegt að koma þurfi fyrir gagnflaugum hér á landi og hugsanlega nýrri ratsjárstöð. Nú hafa engar slíkar fyrirætlanir verið samþykktar enn, en í stuðningi Íslands við yfirlýsinguna felst eigi að síður nokkur skuldbinding. Ég fagna því svo sem, en hitt er óþolandi að svo veigamikið mál skuli hafa hlotið samþykki Íslands fullkomlega umræðulaust.
Til þess að bíta höfuðið af skömminni var varnarmálaráðherrann spurður út í þetta í Kastljósi Ríkissjónvarpsins eftir að heim var komið. Ráðherrann eyddi málinu og hélt því fram eða virtist halda að til stæði að gagnflaugakerfi Bandaríkjamanna í Tékklandi og Póllandi ætti að verja varnarsvæði NATO alls, sem er fjarri lagi. Annað hvort fór Ingibjörg Sólrún með fals eða hitt sem er engu skárra hún vissi ekki hvað hún var að undirrita. Var 37. grein Búkarestar-yfirlýsingarinnar þó merkilega afdráttarlaus og olli t.d. talsverðri fjölmiðlaumfjöllun í Noregi.
Í ljósi alls þessa, auk hins er nefnt var í fyrri færslu um Norðurlandasamstarf, blasir við að utanríkis- og varnarmálaráðherrann hefur varla gert tilraun til þess að standa við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um málaflokk sinn. Til þess að bæta gráu ofan á svart virðist Ingibjörg Sólrún einfaldlega ekki vandanum vaxinn. Hvert sem litið er blasir við klúður eða vanefndir, vanþekking eða fals. Varnarmálin, sem hún sóttist svo ákaft eftir, eru orðinn einn grautur óljósra markmiða og enn torkennilegri framkvæmdar, jafnvel lögbrota og valdþurrðar. Að ekki sé minnst á pólitískar ráðningar og aðrar verri. Hin nýja utanríkisstefna tja, hvar er hún? Er ekki nær að tala um fullkomið stefnuleysi?
Staðreyndin er sú, að Solla hefur siglt og villst inn á allt önnur mið en áður hefur verið gert, blandar saman innri og ytri vörnum eftir þörfum eða hugdettum og utanríkisstefnan er orðin eitthvert óskiljanlegt moð. Og ekki aðeins að smekk þess hauks, sem hér skrifar; ekki síður þegar litið er til þeirra hugsjóna, sem Samfylkingin hefur sett fram í þeim efnum, hvort heldur ræðir um kosningastefnu eða samþykkt landsfundar.
Og hvað má þá segja um stóra verkefnið, sem hefur forgang á öll önnur og allt annað: framboðið í öryggisráðið? Er ekki hverjum manni ljóst að möguleikar Íslands í því kjöri hafa að engu orðið á vakt Ingibjargar Sólrúnar? Ekki verður því þó um kennt, að ekki hafi verið nógu til þess kostað. Áætlaður kostnaður utanríkisráðuneytisins eru 12 milljarðar á þessu ári. Milljarður á mánuði! Hverjar ætli líkurnar séu á því að ráðuneytið haldi sig innan þeirrar áætlunar?
Ég hef haft rækilegar efasemdir um þetta ríkisstjórnarsamstarf frá upphafi og þær hafa lítt dalað. Ekki gagnvart krötunum, þeir eru ágætir fyrir sinn hatt, þó mig greini á við þá um margt. En Kvennalistinn er jafnliðónýtur í ríkisstjórn og hann var í stjórnarandstöðu.
Þegar litið er til þessa fyrsta árs Ingibjargar Sólrúnar í stóli utanríkis- og varnarmálaráðherra má ljóst vera að hún hefur engan áhuga á að framfylgja stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, dugleysi hennar stendur landinu fyrir þrifum og dugnaðurinn er því til óþurftar. Þegar kemur að samskiptum við umheiminn vill hún ekki segja þrjótunum til syndanna, en aðrar yfirlýsingar hafa reynst þjóðinni til skaða. Til hvers er hún þá?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
19.6.2008 | 03:54
Er Ísland ekki lengur meðal Norðurlanda?
Mbl.is segir þá forvitnilegu frétt, að gera skuli óháða rannsókn á því hvernig þróa megi samstarf Norðurlandanna í utanríkis- og öryggismálum á næstu 10-15 árum. Rannsóknin er þó ekki óháðari en svo að henni mun stýra Thorvald gamli Stoltenberg, sem sést hér að ofan, margreyndur stjórnmálamaður og diplómati, fyrir nú utan það að hann er faðir Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs.
Um þetta var gefin út tilkynning í gær, en hún kom ekki upp úr engu. Þetta var ákveðið á utanríkisráðherrafundi Norðurlanda, sem fram fór í Lúxemborg á mánudagskvöldið 16. júní (eftir utanríkisráðherrafund ESB), en dagskráin var vitaskuld ekki óundirbúin. Fylgjast hefur mátt með þessu á bloggi Carls Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sem er harla opinskár um störf sín. Um framhaldið má svo fræðast í grein, sem Sverre Diesen, Juhani Kaskeala og Håkan Syrén, yfirmenn herafla Noregs, Finnlands og Svíþjóðar skrifuðu í Aftenposten, Helsingin Sanomat og Svenska Dagbladet í dag. Á fundinum var þó ekki aðeins rætt um utanríkis- og öryggismál, því þeir hafa sjálfsagt haft um ýmislegt að skrafa vegna þeirrar vandræðastöðu, sem upp er komin í Evrópusambandinu eftir að írskir kjósendur höfnuðu Lissabon-sáttmálanum (líttilega breyttri stjórnarskrá Evrópusambandsins).
Af tilkynningu utanríkisráðuneytisins íslenska má ætla að Ísland sé þátttakandi í þessu verkefni, þó ekkert komi reyndar fram um það. En hvar var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir? Hún var ekki í Lúxemborg, svo mikið er víst. Var þó á því hamrað að allir utanríkisráðherrar Norðurlanda hefðu verið þar og síðan taldir upp ráðherrar Noregs, Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur. En ekki Íslands. Hér hefur enda ekkert verið um samstarf af þessu tagi rætt. Ekki opinberlega og ekki á fundum utanríkismálanefndar Alþingis. Utanríkis- og varnarmálaráðherrann hefur ekki einu sinni sent frá sér yfirlýsingu um málið, eins og hann virðist þó gera af minnsta tilefni þessa dagana.
Ég ritaði á sínum tíma um þau undur að íslenski varnarmálaráðherrann hefði skrópað á sameiginlegum fundi varnarmálaráðherra Norðurlanda á Skagen í Danmörku, sem haldin var fyrir sléttum mánuði. Ég fæ ekki betur séð en að utanríkisráðherra sniðgangi skipulega allt norrænt samstarf í utanríkismálum, nema það komi framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna við, enda er það framboð öðrum þræði á vegum Norðurlanda. Og alveg sérstaklega ef það snýst um hinn málaflokkinn hennar, varnarmálin. Hið hryggilega er að hin Norðurlöndin virðast vera komin á þá skoðun að Ísland teljist ekki með. Það er ekki vegna þess að þau vilji skilja Ísland eftir út undan í þessum efnum. Síður en svo.
En þau eru farin að ganga á lagið á öðrum sviðum, eins og kom í ljós í lok síðasta mánaðar þegar Danir, fyrir hönd Grænlendinga, buðu sumum ríkjum Norðurheimskautsráðsins á fund um hugsanlega skiptingu Norðurheimskautssvæðisins með tilliti til auðlindanýtingar. Íslandi var ekki boðið og til þess að undirstrika niðurlæginguna virtist fundurinn kom utanríkisráðuneytinu í opna skjöldu þegar um var spurt. Aðeins var að fá óljós svör um hvað ráðuneytinu skildist um fundinn, fundarefnið og áhrif hans.
En svo aftur sé spurt: Hvar var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir síðastliðinn mánudag? Jú, hún var upptekin við að halda erindi á einhverri ráðstefnu suður á Melum um hlutverk örríkja undir sólinni. Á ensku var heiti ráðstefnunnar Small States Emerging Powers! Grínlaust. Erindi ráðherrans hét vitaskuld Staða Íslands á alþjóðvettvangi. Miðað við störf ráðherrans sýnist mér að einfalt sé að svara spurningunni um stöðu Íslands á alþjóðvettvangi. Hún er laus til umsóknar.
Norðurlöndin þróa samstarf í utanríkis- og öryggismálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.6.2008 | 18:29
Vanvirða við íslenskt mál
Jú, auðvitað er það vanvirðing við fánann, þjóðina og ríkið, að skera fánann niður. Þessi yfirlýsing anarkista, sem greinir frá í fréttinni, finnst mér þó ekki minni vanvirða. Við íslenskt mál.
Við leggjum engar sérstakar mætur á Jörund
Ég þarf ekki að vita meira um þetta lið.
En ég var ekki minna óánægður með kónana, sem komu á Austurvöll í morgun og spilltu hátíðarstemmningunni þar með því að ráfa um með kröfuspjöld, sem á stóð: Íslenska ríkisstjórnin brýtur mannréttindi. Vér mótmælum allir. Eða eitthvað í þá áttina. Sumir voru með sömu áletrun á ensku, svo þetta færi nú ekki fram hjá erlendum sendimönnum, sem voru viðstaddir þessa hátíðarstund.
Einn af þessum körlum stillti sér upp fyrir aftan mig, þar sem ég stóð framarlega í mannfjöldanum á suðausturhorni Austurvallar. Mér varð það á að spyrja hann hverju þeir væru að mótmæla og eftir nokkur spennuþrungin andartök (maðurinn nötraði svo að ég hélt hann væri að fá hjartaáfall) spurði hann mig á móti hvort ég vissi ekki að ríkisstjórnin hefði verið dæmd fyrir mannréttindabrot á alþjóðavettvangi. Ég nennti ekki að fara að diskútera það allt við manninn (að þetta væri álit, hvorki úrskurður né dómur, og svo hitt að deilur um atvinnuréttindi og veiðiheimildir vörðuðu tæpast mannréttindi), en fann að því að þeir væru að skyggja á þessa hátíðarstund. Það væri synd að segja að hann hafi tekið því vel. En hann færði sig annað.
Þjóðhátíðin er nákvæmlega það, hátíð þjóðarinnar. Forsetinn, ráðherrarnir og pótintátarnir allir eru gestir þjóðarinnar, eins og vel sést á þeirri hefð að í ræðuhöldunum á Austurvelli eru hinir tignu gestir aldrei ávarpaðir í upphafi, eins og tíðkast á flestum fundum. Ávarpið er aðeins eitt: Góðir Íslendingar!
Nú má vel vera að þessir mótmælendur hafi réttmætar umkvartanir fram að færa, en þá eiga þeir að reka þau erindi við þá, sem þeir telja að hafi brotið á sér, og velja sér réttan stað og stund til þess. Það er þjóðhátíðin ekki. Á þeirri hátíð eru mótmælendur boðflennur og veisluspillar. Hafi þeir skömm fyrir.
Skar íslenska fánann á Stjórnarráðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
17.6.2008 | 00:54
Réttum hjálparhönd
Mér brá þegar mér bárust fréttir af því að Finnbogastaðir í Trékyllisvík hefðu brunnið til kaldra kola. Mér rann til rifja þegar ég las um að Mundi á Finnbogastöðum stæði eftir eignalaus, en þó hann hafi sjálfur komist með naumindum út úr eldhafinu brunnu rakkar hans inni. Hef ég þó aldrei komið þangað og aldrei hitt Munda, Guðmund Þorsteinsson.
Samt finnst mér eins og ég þekki Munda eilítið og sé málið skylt eftir að hafa lesið um hann í bókinni hans Hrafns Jökulssonar vinar míns, Þar sem vegurinn endar. Ekki aðeins vegna þess að hún er með betri bókum íslenskum, sem ég hef lesið, heldur vegna hins sem Hrafn hefur ekki þreyttst á að brýna fyrir mér, lesendum sínum og lærisveinum í skákinni, að við erum ein stór fjölskylda. (Og einum stærri fjölskylda í dag en í gær, því Krummi varð afi í morgun!) Þess vegna er mér málið skylt, því við Mundi erum einhvernveginn skyldir (þó Íslendingabók segi það nú aðeins í níunda lið).
Mundi er 65 ára gamall. Faðir hans byggði húsið sem brann í dag og þar fæddist Guðmundur. Fjölskylda hans hefur búið undir Finnbogastaðafjalli í að minnsta kosti 12 kynslóðir. Finnbogastaðir eru einn af 8 bæjum sem eru í byggð í Árneshreppi. Samheldni er aðalsmerki Árneshreppsbúa þegar á móti blæs og sveitungar hans ætla að hjálpa Munda; þeir ætla ekki að láta staðar numið fyrr en þeir eru búnir að reisa karli nýtt hús.
Félag Árneshreppsbúa hefur því stofnað styrktarreikning fyrir Munda á Finnbogastöðum, en reikningsnúmerið er 1161-26-001050 og kennitala 451089-2509.
Það eru blikur á lofti í efnahagslífinu, sumir blankir, margir uggandi. En það er hjóm eitt hjá því að horfa upp á ættaróðalið fuðra upp og allar eigurnar með. Fyrir hálfsjötugan mann. Ég skora því á lesandann að sýna örlæti, samstöðu og hlýhug með því að leggja Munda hjálparhönd. Framlag hvers og eins þarf ekki að vera mikið, en margt smátt gerir eitt stórt.
Svo sakar ekki nema fyrir þessa allra vantrúuðstu að minnast Munda í bænum okkar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.6.2008 kl. 01:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.6.2008 | 13:02
Sögufölsun Samfylkingar
Ég var líkt og endranær á laugardagsmorgnum að hlusta á Vikulokin í Ríkisútvarpinu, þar sem Hallgrímur Thorsteinsson ræðir fréttir vikunnar við tilfallandi spekinga. Ég nenni nú ekki að fara í alla umræðuna þar, hún var upp og ofan eins og gengur. Borgarstjórnarmálin bárust vitaskuld í tal og sýndist sitt hverjum. Þá gerðist það enn einu sinni að fulltrúar Samfylkingarinnar, að þessu sinni borgarfulltrúinn Sigrún Elsa Smáradóttir og þingmaðurinn (og varaformaður Samfylkingarinnar) Ágúst Ólafur Ágústsson, héldu fram sígildri sögufölsun Samfylkingarinnar um meirihlutamyndanir í Reykjavík á þessu kjörtímabili.
Sögufölsunin felst í þeim fullyrðingum að núverandi meirihluti hafi á einhvern hátt verið myndaður með klækjum, prettum og óheilindum, ólíkt öðrum meirihlutum. Sem hliðarrök er jafnan tiltekið að Ólafur F. Magnússon hafi einhvernveginn minna umboð í borgarstjórn en aðrir, sem vitaskuld er firra: Hann er réttkjörinn og er ekki sá borgarfulltrúanna, sem fæst atkvæði hefur að baki sér. Eins að þessi meirihluti sé alveg sérstaklega veikur með aðeins eins manns meirihluta.
Ágúst Ólafur og Sigrún Elsa voru enn við þetta heygarðshornið og sagði að sjálfstæðismenn hefðu myndað núverandi meirihluta með því að pikka út einn mann yfir í sinn hóp úr REI-listanum og að í því fælust sérstök óheilindi. Sigrún Elsa hélt svo áfram (og talaði líkt og hún hafi verið þátttakandi samstarfinu fyrir hönd framsóknarmanna) og sagði að Björn Ingi Hrafnsson hafi hins vegar hrökklast úr meirihlutasamstarfi við sjálfstæðismenn vegna málefna einvörðungu og þannig hafi REI-listinn orðið til. Þarna liggur fölsunin.
Mönnum er hollt að rifja upp þeirra eigin orð, Björns Inga og Dags B. Eggertssonar, þegar þeir lýstu aðdraganda myndunar REI-listans á blaðamannafundi í beinni útsendingu af Tjarnarbakkanum við Iðnó. Þar kom ekkert fram um málefni, enda entust REI-listanum ekki 100 dagar til þess að berja saman málefnaskrá sína. En í máli Björns Inga kom fram að hann hafi verið heill í sínu samstarfi við sjálfstæðismenn, hann verið að reyna að ná málamiðlun um ágreining í borgarstjórnarflokknum og ekki átt von á öðru en að úr leystist. Þegar að símtal barst. Það var Dagur B. Eggertsson, sem vildi hitta hann og rauf þannig viðræðuferli þáverandi meirihlutaflokka.
Það var sumsé Dagur, sem átti frumkvæðið, og klækina, prettina og óheilindin má því rekja lóðbeint til Samfylkingarinnar. Efist menn um það geta þeir velt því fyrir sér að hann var áður búinn að pikka út einn mann annan til þess að leggja drög að þessum klækjastjórnmálum. Hann hafði sumsé talað við fyrrnefndan Ólaf F. Magnússon, sem þá var í leyfi úr borgarstjórn, og tryggt sér stuðning hans við hinn nýja, ómyndaða meirihluta. Þessu lýsti Dagur sjálfur og talaði um að Ólafur væri í raun guðfaðir nýja meirihlutans! Málefni hvað?
Ekki að það skipti öllu máli, þessar meirihlutamyndanir allar voru bara politics as usual. En það segir sitt um pólitísk heilindi Samfylkingarinnar í borgarstjórn að hún getur ekki sagt satt um nokkurn hlut í þessu samhengi, heldur getur hún ekki annað en að leggja á sig langa króka hvað eftir annað til þess að segja ósatt og halla réttu máli.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
14.6.2008 | 12:00
Hvalir, shmalir...
Það er ekki öll heimsbyggðin gapandi vegna hvalveiða. Andfætlingur imprar á mikilvægari áhyggjuefnum en hvölum: kvölum.
Sem minnir mig á annað. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra (en ekki Einar K. Guðfinnsson matvælaráðherra?!) var stödd á leiðtogafundi FAO, Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna, um daginn. Líkt og Robert Mugabe, sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum virðist enn vera við völd í Zimbabve. Skyldi hún hafa rætt við hann um þessi mál? Í ljósi áhuga utanríkisráðherra á aðildarviðræðum við Afríkusambandið væri annað undarlegt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Mars 2006
Tónlistarspilari
Góðar slóðir
-
Egill Helgason
Ugluspegill -
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Doktorinn -
Eyþór Arnalds
Eitt og annað -
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Þegar stórt er spurt -
Sveinn Valgeirsson
Síra Svenni -
Stefán Einar Stefánsson
Innblásin orð -
Gísli Freyr Valdórsson
Varnarjaxlinn -
Snorri Bergsson
Vandræðaskáld -
Hjörtur J. Guðmundsson
Á hægri sveiflu -
Bjarni Harðarson
Sunnlendingagoðinn -
Páll Vilhjálmsson
Tilfallandi Palli -
politik.hexia.net
Safnþró samdrykkunnar -
Sigmar Guðmundsson
Vasaljósið -
Friðjón R. Friðjónsson
Frá greiningardeild -
Björn Ingi Hrafnsson
Varaborgarstjórinn -
Björn Bjarnason
Bloggfaðirinn -
Össur Skarphéðinsson
Viska úr Vopnalág -
Pétur Gunnarsson
Hux -
Birgir Ármannsson
Úr forsetastóli
Bækur
Á náttborðinu
-
: Infidel (ISBN: 0743289684)
-
: The Singularity Is Near (ISBN: 0670033847)
-
: The Force of Reason (ISBN: 0847827534)
-
: The Origins of Virtue (ISBN: 0140264450)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar